Arsenal kvartaði yfir illri meðferð á Saka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. janúar 2024 14:00 Arsenal-mönnum finnst andstæðingar þeirra ganga full hart fram gegn Bukayo Saka. getty/Stuart MacFarlane Fyrr á þessu tímabili kvartaði Arsenal til dómarasamtaka ensku úrvalsdeildarinnar vegna meðferðar andstæðinga þeirra á Bukayo Saka.
Á árinu 2023 var aðeins brotið oftar á tveimur leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni en Saka; Jordan Ayew hjá Crystal Palace og Bruno Guimaraes hjá Newcastle United. Alls var 87 sinnum brotið á Saka. Arsenal-mönnum fannst dómarar ensku úrvalsdeildarinnar ekki taka nógu hart á brotum á Saka og kvörtuðu til dómarasamtaka deildarinnar vegna þess. Arsenal-menn tiltóku sérstaklega að dómarar ættu að spjalda andstæðinga fyrir fyrsta grófa brotið á Saka, í stað þess að bíða eftir öðru broti. Saka skoraði í síðasta leik Arsenal, 2-1 tapi fyrir Fulham á gamlársdag. Hann hefur skorað sex mörk og gefið sex stoðsendingar í nítján deildarleikjum með Arsenal á tímabilinu. Skytturnar eru í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fjörutíu stig, fimm stigum á eftir toppliði Liverpool. Saka og félagar hans í Arsenal mæta Liverpool í 3. umferð ensku bikarkeppninnar á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Fleiri fréttir Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Sjá meira