Dýrið hans Schumachers drapst úr hræðslu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2024 07:01 Ralf Schumacher með bróður sínum Michael þegar þeir kepptu báðir í formúlu 1. Getty/Horstmüller Ralf Schumacher er allt annað en sáttur eftir að þessi mikli dýravinur gekk fram á dautt dádýr á búgarði sínum eftir lætin á Gamlárskvöld.
Þessi fyrrum formúluökumaður og yngri bróðir Michael Schumacher tók við fjölskyldubúgarðinum af foreldrum þeirra. Búgarðurinn er í þýsku borginni Kerpen og er Ralf með fullt af dýrum á honum. Hann heldur því fram að flugeldasýning hjá rafveitufyrirtæki í fimm kílómetra fjarlægð hafi orðið til þess að dádýrið hans drapst úr hræðslu. „Ég vona að þeir sem skutu upp þessum flugeldum séu stoltir af sjálfum sér,“ skrifaði Ralf Schumacher á Instagram. „Ég óska starfsfólki rafveitufyrirtækisins gleðilegs nýs árs. Ég vil þakka ykkur sérstaklega fyrir þennan flugeld sem endaði á minni lóð og drap eitt dýranna minna. Ekki má heldur gleyma ofsahræðunni sem flugeldarnir kölluðu fram hjá hestunum, svínunum og hinum dýrunum hér,“ skrifaði Schumacher. Schumacher, sem tók við fjölskyldubúinu af foreldrunum, sagði í viðtali við Bild fyrir nokkru að hann stefndi að því að stofna þar dýragarð. „Við höfum alltaf verið með fullt af dýrum í okkar fjölskyldu. Við ólumst upp í kringum dýr og auðvitað hafði það mikil áhrif á mig,“ sagði Schumacher í viðtali við Bild. Michael Schumacher var líka mikill dýravinur og gaf meðal annars einu sinni eiginkonu sinni hestabúgarð í Sviss í afmælisgjöf. Þau keyptu seinna saman búgarð í Bandaríkjunum. Michael varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1 en þeir bræður eru þeir einu sem hafa báðir unnið formúlukappakstur. Ralf komst hæst í fjórða sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna en því náði hann bæði 2001 og 2002. Eldri bróðir hans varð heimsmeistari bæði þessi tímabil. View this post on Instagram A post shared by Ralf Schumacher (@ralfschumacher_rsc)
Mest lesið „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Enski boltinn Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Fótbolti Barcelona Evrópumeistari Fótbolti Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Enski boltinn „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ Íslenski boltinn Skikkaðir í einangrun fram að HM Fótbolti Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Íslenski boltinn Haukur mikilvægari en Gidsel Handbolti Benítez rekinn eftir 40 leiki Fótbolti Fleiri fréttir Donni og félagar komnir í úrslit Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Halldór Garðar kveður Keflavík „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Upplifði mikla þjáningu yfir lengri tíma Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Dagskráin í dag: Stúkan gerir upp umferðina og Formúlan í Kanada Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Tvöföld úrslit hjá Lilju Katrínu í Úsbekistan Haukur mikilvægari en Gidsel Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ Sjá meira