New York Times stefnir OpenAI og Microsoft Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. desember 2023 16:01 Stjórnendur blaðsins telja að OpenAI og Microsoft hafi nýtt sér efni þess í samkeppni við fyrirtækið. AP Photo/Mark Lennihan Stjórnendur bandaríska dagblaðsins New York Times hafa höfðað mál gegn fyrirtækjunum OpenAI og Microsoft fyrir meintan þjófnað á höfundarréttarvörðu efni blaðsins.
Fram kemur í umfjöllun blaðsins að fjölmiðlafyrirtækið sé það fyrsta sem stefnir fyrirtækjunum tveimur fyrir notkun á efni við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Áður hefur hópur rithöfunda höfðað mál gegn fyrirtækjunum af svipuðu meiði. New York Times bendir á að milljónir greina úr smiðju fyrirtækisins hafi verið nýttar til þess að þjálfa gervigreindina. Hún keppi nú við dagblaðið sem upplýsingaveita. Ekki kemur fram í stefnu blaðsins hve mikla fjárhæð stjórnendur þess munu koma til með að krefjast af fyrirtækjunum. Segir hinsvegar í stefnuninni að skaðinn nemi milljörðum bandaríkjadala. Fram kemur í frétt miðilsins að stjórnendur New York Times hafi komið að máli við stjórnendur Microsoft og OpenAI vegna málsins í apríl. Þar hafi þeir lýst yfir áhyggjum af notkun fyrirtækjanna á höfundarréttarvörðu efni þeirra og óskað eftir sátt vegna málsins. Meðal þess sem hafi verið rætt hafi verið mögulegur auglýsingasamningur og reglur um notkun gervigreindarinnar á efni blaðsins. Engir samningar hafi hinsvegar náðst.
Gervigreind Bandaríkin Tækni Fjölmiðlar Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira