Fyrsta stiklan úr nýrri gamanmynd Sigurjóns Kjartanssonar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. desember 2023 11:01 Halldór Gylfason og Hilmir Snær í hlutverkum sínum. Fullt hús í leikstjórn Sigurjóns Kjartanssonar verður frumsýnd í janúar 2024 en um er að ræða gamanmynd um kammerhljómsveit í fjárhagskröggum. Staðan er svo slæm að hljómsveitin er tilbúin að fremja hvaða svívirðilega glæp sem er til að halda góða tónleika.
Einvala lið leikara fer með aðalhlutverkin í myndinni, leikarar eins og Hilmir Snær Guðnason, Helga Braga Jónsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Halldór Gylfason, Guðjón Davíð Karlsson, Vivian Ólafsdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Jón Gnarr, Eggert Þorleifsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Pétur Magnússon, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Edda Björg Eyjólfsdóttir svo einhver séu nefnd. Þetta er fyrsta mynd Sigurjóns í fullri lengd en hann er þekktur fyrir verk á borð við Fóstbræður og Ófærð ásamt því að vera annar Tvíhöfðanna og forsprakki rokkhljómsveitarinnar HAM. Sýnishorn úr myndinni má sjá að neðan. Helga Braga Jónsdóttir í hlutverki sínu. Spilað á selló ofan í briminu. Tár á hvarmi Helgu Brögu. Guðjón Davíð Karlsson og Halldór Gylfason uppáklæddir. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi á vel við hér. Eggert Þorleifsson og Jón Gnarr í hlutverkum sínum. Fjölmenn sena úr myndinni.
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Superstore-leikari látinn Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira