Vlahovic tryggði Juventus mikilvægan sigur Smári Jökull Jónsson skrifar 23. desember 2023 13:38 Kenan Yildis fagnar marki sínu í leiknum í dag. Vísir/Getty Juventus minnkaði forskot Inter á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í eitt stig eftir sigur á Frosinone á útiveli. Sigurmarkið kom undir lok leiksins.
Fyrir leikinn í dag var Inter með fjögurra stiga forskot á Juventus á toppi deildarinnar en bæði liðin hafa aðeins tapað einum leik í deildinni á tímabilinu. Kenan Yildiz opnaði markareikninginn í leiknum í dag þegar hann kom Juventus yfir strax á 12. mínútu leiksins með frábæru marki en hann fór framhjá þremur varnarmönnum heimamanna áður en hann þrumaði boltanum í nærhornið. Staðan í hálfleik var 1-0 en Jaime Baez jafnaði metin fyrir Frosinone í upphafi síðari hálfleiks. Hann fékk þá stórkostlega sendingu frá Ilario Monterisi innfyrir vörn Juve og skoraði framhjá Wojciech Szczesny í markinu. Það leit út fyrir að Juventus væri að fara að gera sitt sjötta jafntefli í Serie A á tímabilinu en á 81. mínútu kom Dusan Vlahovic gestunum í 2-1 með frábæru skallamarki eftir fyrirgjöf Weston McKennie. Markið dugði Juventus til að tryggja sér 2-1 sigur og liðið er nú aðeins einu stigi á eftir Inter sem er á toppi deildarinnar. Inter á leik gegn Lecce á heimavelli síðar í dag.
Ítalski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Sjá meira