Vill að Michael Jordan verði svaramaður þegar Jordan giftist Pippen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2023 08:01 Michael Jordan fylgist hér með leik þegar hann var eigandi Charlotte Hornets. Getty/Jacob Kupferman Eitt af brúðkaupum ársins í körfuboltaheiminum gæti mögulega verið í bígerð.
Michael Jordan og Scottie Pippen áttu sviðið saman á tíunda áratug síðustu aldar þegar Chicago Bulls vann sex NBA meistaratitla á árunum 1991 til 1998. Jordan og Pippen eru eitt besta tvíeyki körfuboltasögunnar en Jordan fór ekki að vinna titla fyrr en að Pippen mætti á svæðið. Samskipti þeirra hafa verið mjög stirð síðustu árin og Pippen var ekki sáttur við heimildaþættina „The Last Dance“ sem slógu gegn vorið 2020. View this post on Instagram A post shared by ClutchPoints (@clutchpoints) Nú eru Jordan og Pippen saman á ný en ekki þó eins við þekkjum það. Marcus Jordan, sonur Michael Jordan, og Larsa Pippen, fyrrum eiginkona Scottie Pippen, ætla að gifta sig á næstunni. Marcus Jordan vill líka að faðir sinn, Michael, verði svaramaður hans í brúðkaupinu. „Ég var svaramaður í brúðkaupi pabba og ég var svaramaður í brúðkaupi bróður míns. Augljóslega vill ég að við höldum hefðinni gangandi. Þannig sé ég hlutina,“ sagði Marcus í viðtali í YouTube þætti Pablo Torre. Marcus segir að brúðkaupið sé í undirbúningi en hann gaf ekkert meira upp um hvar eða hvenær það verður. Marcus Jordan spilaði sjálfur körfubolta fyrir University of Central Florida frá 2010 til 2012. Verðandi eiginkona hans, Larsa Pippen, skildi við Scottie árið 2021. Hún er ein af stjörnum sjónvarpsþáttarins Real Housewives of Miami á Bravo sjónvarpsstöðinni. Larsa Pippen er 49 ára gömul og á fjögur börn með Scottie. Hún er sextán árum eldri en Marcus.
NBA Mest lesið Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Enski boltinn „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Íslenski boltinn Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta Fótbolti Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Sló Íslandsmetið í sleggjukasti Sport Fleiri fréttir Tap í síðasta leik fyrir EM „Lukkudýrið“ í mál við félagið ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Faðir Boston Celtics stjörnu handtekinn fyrir morðtilraun Yngri Agravanis-bróðirinn í Stjörnuna Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Sjá meira