Veðrið gengur niður en hvessir aftur í nótt Atli Ísleifsson skrifar 11. október 2023 07:16 Reikna má með að það muni hvessa aftur í nótt. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli vonskuveðrinu hér í gær og nótt fjarlægist nú og stefnir á Noreg. Veðrið gengur því niður í dag, fyrst vestantil á landinu en þó verður enn allhvasst eða hvasst austast seint í dag.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að spáð sé minnkandi norðan- og norðvestanátt, 15 til 25 metrum á sekúnduá Suðaustur- og Austurlandi með morgninum og síðan fari að lægja þar. Mun hægari vindur annars staðar. Reikna má með dálítilli slyddu eða snjókomu, en þurrt að kalla sunnan- og vestantil. Hiti verður yfirleitt á bilinu núll til fimm stig. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það muni svo aftur hvessa í nótt og verði norðaustan og norðan 10 til 18 metrar á sekúndu á morgun, en 15 til 23 metrar á sekúndu syðst fram eftir degi. Slydda eða snjókoma með köflum, hiti núll til fimm stig og úrkomulítið suðvestanlands eftir hádegi. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan og norðan 10-18 m/s, en 15-23 syðst fram eftir degi.Slydda eða snjókoma með köflum, hiti 0 til 5 stig. Þurrt að kalla suðvestanlands síðdegis. Á föstudag: Norðan 10-18 og él, en úrkomulítið um landið sunnanvert. Dregur smám saman úr vindi eftir hádegi. Hiti kringum frostmark. Á laugardag: Vestlæg eða breytileg átt 5-13. Dálítil él og kalt í veðri. Á sunnudag: Breytileg átt og slydda eða snjókoma norðantil, hiti nálægt frostmarki. Súld eða rigning og mildara á sunnanverðu landinu. Á mánudag: Austlæg átt og dálítil snjókoma, en úrkomulítið syðra. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðaustanátt með hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í þremur landshlutum Þungbúið norðantil en bjart og hlýtt sunnan heiða Úrkoma í öllum landshlutum „Það er nóg eftir af sumrinu“ 27 daga frostlausum kafla lokið Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Viðrar vel til gleðigöngu Rigning norðantil en yfirleitt bjart sunnan heiða Hiti að sautján stigum og hlýjast suðvestantil Úrkomusvæði fer yfir sunnan- og vestanvert landið Dálítil væta en fremur hlýtt Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Sjá meira