Stormur og talsverð rigning í kortunum Atli Ísleifsson skrifar 10. október 2023 07:31 Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun vegna norðvestanstorms í gildi frá 15 til 20 í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðvestan og norðan 15 til 23 metrum á sekúndu í dag og má reikna með rigningu eða slyddu um landið norðanvert. Einnig má reikna með snjókomu á heiðum þannig að færð spillist og sums staðar talsverðri eða mikilli úrkomu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt úrkomulítið sunnan heiða. Þá er búist við norðvestan 20 til 28 metrum á sekúndu suðaustanlands síðdegis. Hiti verður á bilinu eitt til sjö stig. Líklegt er talið að færð muni spillast á heiðum. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um land allt í dag vegna hvassviðrisins. Appelsínugular viðvaranir eru í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Suðausturlandi til morguns. Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun í gildi frá 15 til 20 í dag. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um land allt í dag.Veðurstofan Það lægir á vestanverðu landinu í nótt og fyrramálið, en veðrið gengur rólega niður eystra á morgun. Dálítil slydda eða snjókoma á Norður- og Austurlandi, annars yfirleitt þurrt. Staðan klukkan 14 í dag.Vísir/Vilhelm Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðvestan 15-25 á Suðaustur- og Austurlandi um morguninn, annars mun hægari. Dregur síðan talsvert úr vindi, víða 5-13 m/s síðdegis. Dálítil slydda eða snjókoma, en þurrt að kalla sunnan- og vestantil. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Norðan og norðaustan 13-20 og slydda eða snjókoma með köflum, en rigning á láglendi við suður- og austurströndina. Styttir upp sunnan heiða seinnipartinn. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðan 10-18 og él, en úrkomulítið um landið sunnanvert. Hiti kringum frostmark. Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt og stöku él, en líkur á snjókomu norðvestantil. Kalt í veðri. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir suðvestanátt með vætu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Með kylfur og mikið magn vímuefna Innlent Fleiri fréttir Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Milt veður um helgina Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Sjá meira