Íslendingaliðin öll í baráttu um sæti í úrvalsdeildinni Smári Jökull Jónsson skrifar 23. ágúst 2023 18:01 Brynjólfur Andersen og félagar hans í Kristiansund töpuðu á heimavelli í dag. Kristiansund Fjölmargir Íslendingar komu við sögu þegar heil umferð var leikin í norsku B-deildinni í knattspyrnu í dag.
Júlíus Magnússon og samherjar hans í Fredrikstad í eru með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar eftir góðan 2-1 útisigur á Kongsvinger í dag. Júlíus var í byrjunarliði Fredrikstad og lék allan leikinn fyrir liðið en um var að ræða algjöran toppslag enda liðin efst og jöfn að stigum í tveimur efstu sætunum fyrir leikinn. Þegar tíu leikir eru eftir af deildinni er Fredrikstad með 41 stig á toppnum og er með sjö stiga forystu á KFUM Oslo sem er í þriðja sæti. Tvö efstu lið deildarinnar fara upp í úrvalsdeild. Brynjólfur Andersen Willumson var í byrjunarliði Kristiansund sem tapaði á heimavelli fyrir Sandnes Ulf. Brynjólfur var tekinn af velli á 71. mínútu í stöðunni 1-0 fyrir Sandnes Ulf en það urðu lokatölur leiksins. Kristiansund er í 6. sæti deildarinnar eftir tapið. Þrír Íslendingar voru í byrjunarliði Sogndal sem tapaði 3-0 á útivelli gegn Raufoss. Jónatan Ingi Jónsson lék allan leikinn en Valdimar Þór Ingimundarson var tekinn af velli á 63. mínútu. Þá var Óskar Borgþórsson sömuleiðis í byrjunarliðinu og fór af velli þremur mínútum fyrir leikslok. Óskar er nýgenginn til liðs við Sogndal frá Fylki. Sogndal er í 5. sæti deildarinnar og í baráttu um að komast upp í efstu deild. Bjarni Mark Antonsson var í liði Start sem vann 1-0 sigur á Åsene á heimavelli. Start er í fjórða sæti deildarinnar en liðin í sætum þrjú til sex spila umspilsleiki um sæti í efstu deild. Fimm stig munar á Start og Kongsvinger í öðru sætinu.
Norski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira