Úrkomusvæðin fjarlægjast, gestum Menningarnætur til gleði Atli Ísleifsson skrifar 17. ágúst 2023 07:26 Flugeldasýningin ætti að sjást vel á öllu höfðurborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Spáð er suðvestanátt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, með rigningu og súld, einkum vestanlands. Það verður þó þurrt að kalla norðaustantil og styttir víða upp suðvestanlands í kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði yfirleitt á bilinu tólf til tuttugu stig, hlýjast norðaustalands. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði allmikil og hægfara lægð langt suður í hafi sem muni stýra veðrinu fram yfir helgi, en það þýði að austanáttir verði ríkjandi, jafnvel allhvassar allra syðst. „Því er í gildi athugasemd vegna snarpra vindhviða undir Eyjajfjöllum og í Mýrdal á morgun, sem gætu verið varasamar ökumönnum, t.d. með tengivagna. Lægðin blæs hlýju lofti yfir landið, þ.a. hitatölur verða með skásta móti, en hlýja loftinu fylgir vitaskuld einnig raki frá hafinu umhverfis, sem skilar sér í rigningu eða súld með köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Til allrar hamingju fyrir gesti menningarnætur Reykjavíkur á laugardag virðast úrkomusvæðin hafa fjarlægst landið það mikið, að birti til á Suður- og Vesturlandi. Flugeldasýningin ætti því að sjást vel á öllu höfðuborgarsvæðinu, sem eflaust mun gleðja hátíðargesti,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustlæg átt, 5-10 m/s, en 10-15 syðst. Dálítil rigning eða súld öðru hvoru á sunnanverðu landinu, en annars þurrt að kalla. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi, en svalara í þokulofti við austurströndina. Á laugardag: Austlæg átt 3-10 m/s, en 10-15 við suðausturströndina. Skýjað og smásúld austast, en annars bjart með köflum. Hiti 9 til 19 stig, svalast fyrir austan. Á sunnudag: Norðaustlæg átt og lítilsháttar rigning eða súld austantil, en annars bjart með köflum. Áfram fremur hlýtt. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Væta með köflum á austanverðu landinu, en annars úrkomulítið. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan heiða. Á miðvikudag: Líklega hægir vindar, þurrt að mestu og milt.
Veður Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira