„Eina sem ég er hræddur við í lífinu er guð og ég sé hann ekki á vellinum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júní 2023 12:01 André Onana er hvergi banginn fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. getty/Mattia Ozbot Markvörður Inter segir að engin pressa sé á ítalska liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Inter mætir þá Manchester City í Istanbúl. City vann tvöfalt heima fyrir og getur með sigri í úrslitaleik Meistaradeildarinnar orðið annað enska liðið til að vinna þrennuna svokölluðu. Þrátt fyrir að City sé mun sigurstranglegra er engan bilbug á André Onana og félögum hans í Inter að finna. „Þeir eru líklega besta lið í heimi en þeir verða að sýna það á laugardaginn. Við ætlum að verjast og skrifa söguna. Það verður ekki auðvelt en þeir verða að syna að þeir séu bestir,“ sagði kamerúnski markvörðurinn. „Af hverju ætti ég ekki að vera rólegur? Ég er slakur. Það er engin pressa á okkur. Við vitum að þetta verður ekki auðvelt. Þetta er fótbolti. Eina sem ég er hræddur við í lífinu er guð og ég sé hann ekki á vellinum. Menn eru menn.“ Onana hefur haldið marki sínu fimm sinnum hreinu í sex leikjum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Aðeins Arsenal hefur haldið oftar hreinu í útsláttarkeppninni í sögu Meistaradeildarinnar, eða sex sinnum tímabilið 2005-06. Leikur Manchester City og Inter hefst klukkan 19:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:15.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira