Fjölnismenn á toppinn með stórsigri | Selfyssingar unnu Suðurlandsslaginn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. maí 2023 21:13 Fjölnismenn tróna á toppi Lengjudeildarinnar. Vísir/Vilhelm Fjölnismenn tróna á toppi Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir afar öruggan 6-0 sigur gegn Þór frá Akureyri í kvöld. Þá vann Selfoss nauman 3-1 útisigur gegn Ægi í Suðurlandsslag.
Máni Austmann Hilmarsson kom Fjölnismönnum yfir gegn Þórsurum eftir tuttugu mínútna leik áður en Axel Freyr Harðarson og Hákon Ingi Jónsson bættu sínu markinu hvor við fyrir hálfleikshléið. Þeir þrír voru svo allir aftur á ferðinni í síðari hálfleik og sáu til þess að Fjölnismenn unnu öruggan 6-0 sigur. Fjölnir trónir á toppi Lengjudeildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki, fjórum stigum meira en Þór sem situr í fimmta sæti. Þá unnu Selfyssingar 3-1 útisigur er liðið heimsótti nágranna sína í Ægi til Þorlákshafnar í kvöld. Þorsteinn Aron Antonsson kom gestunum frá Selfossi yfir strax á þriðju mínútu leiksins áður en Hvoje Tokic, fyrrum leikmaður Selfoss, jafnaði metin fyrir heimamenn tíu mínútum síðar. Það var svo ekki fyrr en á 82. mínútu að gestirnir náðu forystunni á ný þegar Guðmundur Tyrfingsson skoraði fyrir Selfoss áður en Gary Martin gerði út um leikinn sjö mínútum síðar. Selfyssingar eru nú með sex stig í fjórða sæti deildarinnar, en Ægismenn sitja á botninum með eitt stig. Að lokum vann Afturelding 3-2 útisigur gegn Gróttu, Njarðvík lagði Þrótt 3-1 og Skagamenn gerði góða ferð í Breiðholtið og unnu 3-2 sigur gegn Leikni. Upplýsingar um úrslit og markaskorara fengust á Fótbolti.net.
Lengjudeild karla Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira