Leikmenn Chelsea ofsóttir af TikTok stjörnu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. maí 2023 23:30 Orla Melissa Sloan áreitti þá Mason Mount, Billy Gilmour og Ben Chilwell. vísir/getty Ung kona hefur viðurkennt að hafa ofsótt og áreitt þrjá leikmenn enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea.
Enska TikTok stjarnan Orla Melissa Sloan ofsótti Mason Mount og Ben Chilwell og áreitti Billy Gilmour. Sloan og Mount sváfu saman eftir gleðskap á heimili Chilwells í nóvember 2020. Þau héldu í kjölfarið í sambandi í sex mánuði áður en Mount batt endi á það. Hin 21 árs Sloan lét Mount ekki í friði eftir þetta og sendi honum ótal skilaboð. Mount lét loka á símanúmer Sloans en hún notaði þá önnur númer til að senda honum skilaboð yfir fjögurra mánaða tímabil. Alls voru símanúmerin sem Sloan notaði 21 talsins. Eftir þetta skilaboðafargan kærði Mount Sloan og sagði að hún væri haldin þráhyggju gagnvart sér. Hann óttaðist hvað hún myndi gera, þar á meðal að mæta á æfingasvæði Chelsea. Sloan sendi einnig skilaboð á vini og ættingja Mounts, meðal annars Chilwell sem er samherji hans í Chelsea og enska landsliðinu. Gilmour, sem er lánsmaður hjá Brighton, fékk einnig skilaboð frá Sloan í rúman mánuð og sum þeirra innihéldu hótanir. Hann viðurkenndi að skilaboðin frá Sloan hefðu haft mikil áhrif á sig, hann hafi ekki getað sofið og þurft svefntöflur til þess. Sloan viðurkenndi brot sín en málið verður tekið fyrir á ný 20. júní.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira