Stjóri Jóhanns Bergs á blaði hjá Chelsea Aron Guðmundsson skrifar 21. apríl 2023 17:00 Jóhann Berg Guðmundsson og Vincent Kompany hafa náð afar vel saman hjá Burnley Vísir/Getty Vincent Kompany, knattspyrnustjóri íslenska landsliðsmannsins Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá enska B-deildar liðinu Burnley er einn þeirra sem er á blaði hjá forráðamönnum Chelsea er kemur að ráðningu á nýjum knattspyrnustjóra félagsins.
Frá þessu greinir Sky Sports í dag en Kompany hefur verið að gera virkilega flotta hluti á sínu fyrsta tímabili sem knattspyrnustjóri Burnley. Liðið hefur nú þegar tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.Þjálfaraferill Kompany, sem á sínum tíma sló í gegn sem leikmaður Manchester City, er ekki langur. Hann hófst í Belgíu hjá Anderlecht og þaðan færði hann sig yfir til Burnley og orðið til þess að ferskir vindar blása þar.Á sama tíma hefur enska úrvalsdeildarfélaginu Burnley gengið bölvanlega. Forráðamenn félagsins hafa í tvígang rekið knattspyrnustjóra sinn á yfirstandandi tímabili og nú er Frank Lampard starfandi þar sem bráðabirgðastjóri.Heimildir Sky Sports herma að þrír knattspyrnustjórar séu á blaði hjá forráðamönnum Chelsea þessa stundina. Það séu þeir Mauricio Pochettino, Vincent Kompany og einn stjóri til viðbótar sem ekki er nafngreindur sem um ræðir þar. Talið er að Julian Nagelsmann, fyrrum knattspyrnustjóri Bayern Munchen hafi ekki lengur áhuga á að taka við stjórnartaumunum á Brúnni. Þessa dagana fari fram óformlegir fundir forráðamanna Chelsea með fyrrgreindum stjórum.Þrátt fyrir að stórum fjárhæðum hafi verið eytt í kaup á nýjum leikmönnum hafa úrslitin ekki fallið með Chelsea.Liðið er sem stendur í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 39 stig, 11 stigum frá Evrópusæti.
Enski boltinn Mest lesið Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Fótbolti „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Körfubolti Gidsel kom í veg fyrir gleði Orra en Viktor varði víti sem Íslendingar dæmdu Handbolti Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Fótbolti Mætti á völlinn með jólamynd af Stefáni Teiti og frú Fótbolti Dagskráin í dag: Alvöru körfuboltakvöld og Færeyjar elta HM-draum Sport Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Fótbolti Fleiri fréttir Stefnir Manchester United vegna „kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Sjá meira