Bayern áfram á toppnum eftir útisigur Smári Jökull Jónsson skrifar 2. apríl 2023 14:15 Glódís Perla Viggósdóttir er lykilhlekkur í vörn Bayern München. Getty/Xavi Bonilla Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í vörn Bayern Munchen sem vann 2-0 sigur á SV Meppen í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Bayern féll úr leik í Meistaradeildinni í vikunni eftir vítaspyrnukeppni gegn Arsenal en var þó talið sigurstranglegri aðilinn í leik dagsins en SV Meppen er í tíunda sæti deildarinnar og í harðri fallbaráttu. Fyrir leikinn var Bayern á toppi deildarinnar með eins stigs forystu á Wolfsborg en Sveindís Jane Jónsdóttir og samherjar hennar elta Bayern eins og skugginn. Staðan í hálfleik var markalaus en strax í upphafi síðari hálfleiks kom Lina Magull Bayern í 1-0 þegar hún skoraði eftir sendingu Franziska Kett. Á 65. mínútu komst liðið síðan 2-0 þegar Georgia Stanway skoraði úr vítaspyrnu. Fleiri urðu mörkin ekki og Bayern fagnaði 2-0 sigri. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á hjá Bayern þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en Cecilía Rán Rúnarsdóttir sat allan tímann á varamannabekknum. Bayern er nú með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar en Wolfsburg getur minnkað hana niður í eitt stig með sigri í leik gegn Werder Bremen sem hófst nú klukkan 14:00.
Þýski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Sjá meira