Þræddi fjallvegi Tenerife til að skoða eldfjall Bjarki Sigurðsson skrifar 21. mars 2023 09:04 James Einar Becker og Fiat 500-bílinn sem hann ók á Tenerife. Vísir/James Einar Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í öðrum þætti annarrar þáttaraðar eru Fiat 500 og Fiat 500e teknir fyrir.
James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Hann byrjar þáttinn á Fiat 500 á eyjunni Tenerife. Leigði hann bílinn þar í fríi sínu til þess að skoða eyjuna betur. Meðal þess sem hann gerði var að þræða helstu fjallvegi eyjunnar til að komast að eldfjallinu Teide sem er á miðri eyjunni. Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan, en sjá má fyrri þætti hér. Klippa: Tork gaur - Fiat 500 og 500e Hann segir bílinn vera bæði frábæran á sumrin og á veturna. Hann sé lítill og nettur með blæju sem hentar vel þegar heitt er úti. James hefur sjálfur átt Fiat 500 og var hann aldrei til vandræða á veturna, hann festist aldrei í sköflum heldur keyrði yfir þá. En þá er förinni aftur heitið til Íslands. Þar prófaði James Einar rafmagnsútgáfu bílsins, Fiat 500e. Vill hann meina að bíllinn sé fallegasti og besti smábíllinn sem hægt er aka á götum Reykjavíkur. „Það helsta sem er búið að breytast er inni í bílnum. Mælaborðið og afþreyingarkerfið er orðið snertiskjáir og fínt. Fallegir og góðir litir. Á gamla bílnum átti handfangið að utan til að brotna en nú er búið að koma handfanginu fyrir undir „body-inu“ þannig að það er ekki að fara að brotna af,“ segir James um muninn á bílunum.
Tork gaur Kanaríeyjar Íslendingar erlendis Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira