Hvassir austanvindar og snjókoma með köflum syðst Atli Ísleifsson skrifar 21. mars 2023 07:04 Ferðamenn og aðrir vegfarandur eru beðnir um að kynna sér vel veðurspá og færð áður en lagt er af stað. Vísir/Vilhelm Allmikið og alldjúpt lægðasvæði er suður af landinu og veldur hvössum austanvindum, jafnvel stormi eða roki syðst. Snjókoma með köflum eða skafrenningur á sunnanverðu landinu og því getur færðin spillst með skömmum fyrirvara.
Á vef Veðurstofunnar segir að það séu dálítil él í öðrum landshlutum, en yfirleitt úrkomulaust á Vesturlandi og dragi úr frostinu. Gular veðurviðvaranir vegna vinds og hríðar eru í gildi á Suðurlandi, Suðausturlandi og Miðhálendi, sem og á Vestfjörðum, og eru ferðamenn og aðrir vegfarandur beðnir um að kynna sér vel veðurspá og færð áður en lagt er af stað. „Fer að rofa til syðra í kvöld, en áfram hvassviðri eða stormur syðst í nótt og fram á morgundaginn. Norðaustankaldi eða -strekkingur og víða dálítil él seinnipartinn á morgun, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Áfram frost víða á landinu og ekki útlit fyrir neinum hlýindum á næstunni,“ segir á vef Veðurstofunnar Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan 13-18 m/s, en 18-25 við suðausturströndina. Dálítil él á austanverðu landinu og með norðurströndinni, en annars yfirleitt léttskýjað. Dregur smám saman úr vindi síðdegis. Frost víða 2 til 7 stig, en frostlaust syðst. Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s og dálítil él, en bjartviðri sunnan- og vestantil. Frost 0 til 8 stig að deginum, minnst syðra. Á föstudag: Norðaustankaldi og smá él, einkum með norðurströndinni, en lengst af léttskýjað syðra. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og líkur á snjókomu eða éljum í flestum landshlutum. Áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira