Úlfarnir fjarlægjast fallsvæðið eftir sigur gegn Tottenham | Brighton valtaði yfir West Ham Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2023 17:19 Adama Traore reyndist hetja Úlfanna gegn Tottenham. Vísir/Getty Wolves vann virkilega sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þá vann Brighton afar öruggan 4-0 sigur gegn West Ham á sama tíma og Aston Villa lagði Crystal Palace, 1-0.
Þrátt fyrir að gestirnir í Tottenham hafi þótt líklegri til að verða fyrri til að brjóta ísinn gegn Úlfunum tókst liðinu ekki að skapa sér nein opin marktækifæri. Það kom svo í bakið á þeim því Adama Traore tryggði Úlfunum sigur með föstu skoti á 82. mínútu leiksins. Niðurstaðan því 1-0 sigur Úlfanna sem nú eru með 27 stig í 13. sæti deildarinnar, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið. Tottenham situr hins vegar í fjórða sæti með 45 stig. Þá fóru liðsmenn Brighton illa með West Ham á sama tíma þar sem Alexis MacAllister kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Það voru svo þeir Joel Veltman, Kaoru Mitoma og Danny Welbeck sem sáu um markaskorunina í síðari hálfleik og niðurstaðan varð 4-0 sigur Brighton. Brighton situr nú í áttunda sæti deildarinnar með 38 stig, en West Ham situr í því 16. með 23 stig, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið. Þá skoraði Joachim Andersen eina mark leiksins í leik Aston Villa og Crystal Palace, en því miður fyrir hann setti hann boltann í rangt net. Aston Villa vann því góðan 1-0 sigur og situr nú í 11. sæti deildarinnar með 34 stig, sjö stigum meira en Crystal Palace sem situr sæti neðar.
Enski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira