Lewandowski skammaði Ansu Fati inni í klefa eftir tapið á Old Trafford Smári Jökull Jónsson skrifar 25. febrúar 2023 12:00 Robert Lewandowski og Lisandro Martinez berjast um boltann í leiknum á fimmtudag. Vísir/Getty Manchester United sló Barcelona úr keppni í Evrópudeildinni eftir 2-1 sigur á Old Trafford á fimmtudagskvöldið. Eftir leikinn lenti liðsfélögunum Robert Lewandowski og Ansu Fati saman inni í klefa.
Leikur risanna tveggja í Evrópudeildinni á fimmtudag var beðið með mikilli eftirvæntingu enda spennan töluverð eftir 2-2 jafntefli í fyrri leiknum. Barcelona komst yfir í fyrri hálfleik á Old Trafford en United svaraði með tveimur mörkum og tryggði sér þar með sæti í næstu umferð keppninnar en spænsku risarnir eru úr leik. Í Daily Mail er greint frá því að eftir leikinn á fimmtudag hafi stjörnuframherji Barcelona, Robert Lewandowski, látið ungstirnið Ansu Fati heyra það inni í klefa. Lewandowski skoraði úr vítaspyrnu í leiknum en var augljóslega pirraður í síðari hálfleiknum þegar Fati náði boltanum á undan Lewandowski þegar fyrirgjöf kom sem ætluð var Pólverjanum öfluga. Í klefanum eftir leik lét Lewandowski svekkelsi sitt bitna á Fati og þó svo að hann hafi ekki farið yfir strikið þá hafi hann bent Spánverjanum unga á að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem þetta gerðist. Fati, sem kom inná sem varamaður í leiknum, tók til varna og sagðist ekki hafa séð Lewandowski og hafi því sjálfur ætlað að reyna að ná skalla á markið. Lewandowski hefur leikið frábærlega á sínu fyrsta tímabili á Spáni og skorað 25 mörk í 30 leikjum fyrir Katalóníufélagið.
Evrópudeild UEFA Spænski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Sjá meira