Kórdrengir verða ekki með og Ægir fær sæti í Lengjudeildinni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. febrúar 2023 13:31 Kórdrengir verða ekki með lið á Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar. Vísir/Diego Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur staðfest að Kórdrengir munu ekki taka þátt á Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar. Kórdrengir voru með lið í Lengjudeildinni síðasta sumar, en Ægir frá Þorlákshöfn tekur sæti þeirra í næst efstu deild.
Kórdrengir höfðu verið í viðræðum við FH um að Fimleikafélagið myndi taka yfir félagið. Þær samningaviðræður virðast þó hafa siglt í strand og Kórdrengir munu því ekki senda lið til keppni á Íslandsmót karla. Eins og áður segir tekur Ægir sæti Kórdrengja í Lengjudeildinni, en Ægismenn höfnuðu í þriðja sæti 2. deildarinnar í haust. „Mótanefnd KSÍ fundaði á föstudag um stöðu Kórdrengja og knattspyrnumóta sumarsins 2023 og stjórn KSÍ fundaði um málið í dag, laugardag,“ segir í tilkynningu KSÍ um málið. „Stjórn KSÍ hefur ákveðið að taka þátttökutilkynningu Kórdrengja ekki til greina og byggir ákvörðun sína á grein 13.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Kórdrengir munu því ekki taka þátt í mótum sumarsins. Hér er um að ræða Lengjudeild karla og Mjólkurbikar karla. Ljóst er að þessi ákvörðun hefur áhrif í öllum deildum Íslandsmóts meistaraflokks karla, nema í Bestu deild. Mótanefnd KSÍ vinnur nú hörðum höndum að því að gera nauðsynlegar breytingar á mótum.“ Eins og kemur fram í tilkynningunni hefur þetta áhrif á allar deildir Íslandsmótsins, nema Bestu-deildina. Þannig tekur KFG sæti Ægis í 2. deild, Hvíti riddarinn tekur sæti KFG í 3. deild, Hamar tekur sæti Hvíta riddarans í 4. deild og Álafoss tekur sæti Hamars í 5. deild.
Kórdrengir Lengjudeild karla Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira