Trúði því ekki þegar Lebron James settist við hliðina á henni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2023 12:31 LeBron James fagnaði því vel þegar hann sló stigametið en hann hefur ekki spilað með Lakers liðinu síðan. Getty/Robert Gauthier Hin tólf ára gamla Gaia fékk ekki að sjá LeBron James spila á laugardagskvöldið en fékk samt að sitja við hliðina á stigahæsta leikmanninum í sögu NBA deildarinnar.
James er að glíma við meiðsli og hefur misst af leikjum Los Angeles Lakers eftir að hann bætti stigametið í síðustu viku. James var því ekki með þegar Los Angeles Lakers heimsótti Golden Sate Warriors um helgina. Hann fékk hins vegar sæti á gólfinu yst á varamannabekk Lakers. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport) Við hlið hans sátu systkinin Gaia og Liam. Þau voru auðvitað mætt löngu fyrir leik og Gaia var ekkert að velta því fyrir sér hver ætti að sitja í sætinu við hlið hennar. Myndavélarnar voru síðan á LeBron James þegar hann mætti í salinn og náði því viðbrögðunum frá Gaiu þegar hún áttaði sig á því hver hefði sest við hliðina á henni. Viðbrögð hennar voru svo kostuleg að þau fóru á flug um samfélagsmiðla. Hlutirnir eru líka fljótir að gerast á tækniöld því strax í öðrum leikhluta var Gaia kominn í sjónvarpsviðtal. Viðtalið var tekið við Gaiu þar sem Lebron sat við hlið hennar en hann kippti sér ekkert upp við það og lét sem ekkert væri. Eftir leikinn hittust þau þó og hún fékk að taka mynd af sér með honum. Gaia sagðist hafa ætlað að sjá Lebron bæta stigametið í þessum leik en hann fór á mikið flug og skoraði mun meira þannig að metið féll löngu fyrr. Hér fyrir neðan má sjá þegar LeBron gengur í salinn sem og viðtalið við Gaiu. View this post on Instagram A post shared by SportsCenter (@sportscenter)
NBA Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Fleiri fréttir Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Sjá meira