Hammarby með Hólmbert efstan á innkaupalista Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2023 11:02 Hólmbert Aron Friðjónsson í landsleik gegn Liechtenstein vorið 2021. Hann hefur spilað sex A-landsleiki. Getty Sænska knattspyrnufélagið Hammarby hefur í hyggju að fá til sín framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson sem er samningsbundinn þýska 2. deildarfélaginu Holstein Kiel.
Aftonbladet greinir frá þessu í dag og segir að Hammarby hafi þegar hafið viðræður um að fá Hólmbert til sín fyrir komandi tímabil í sænsku úrvalsdeildinni. Samkvæmt Aftonbladet er Hammarby með fleiri erlenda framherja í sigtinu en Hólmbert er efstur á lista og talinn fullkominn til að fylla í skarðið sem Veton Berisha skildi eftir þegar hann fór til Molde í Noregi. Hólmbert var á síðasta ári lánaður til Lilleström í Noregi og skoraði fimm mörk í norsku úrvalsdeildinni auk þess að gefa þrjár stoðsendingar, þrátt fyrir að vera aðeins átta sinnum í byrjunarliði á leiktíðinni. Hólmbert er samningsbundinn Holstein Kiel fram til sumarsins 2024 en hefur aðeins spilað fjóra deildarleiki fyrir liðið, alla sem varamaður, frá því að hann kom frá Brescia á Ítalíu sumarið 2021. Hólmbert hefur einnig verið á mála hjá Aalesund í Noregi, Bröndby í Danmörku og Celtic í Skotlandi, en er uppalinn hjá HK og lék einnig með Fram, KR og Stjörnunni hér á landi. Hólmbert, sem verður þrítugur í apríl, á að baki sex A-landsleiki og skoraði í þeim tvö mörk. Fjöldi Íslendinga hefur spilað fyrir Hammarby og til að mynda var Pétur Marteinsson fyrirliði liðsins á sínum tíma. Jón Guðni Fjóluson er sem stendur eini Íslendingurinn sem er samningsbundinn félaginu en hann lék ekkert í fyrra og mun ekkert spila í ár, vegna meiðsla.
Sænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira