Union Berlin komið á topp þýsku deildarinnar Smári Jökull Jónsson skrifar 4. febrúar 2023 16:29 Stuðningsmenn Union Berlin geta verið sáttur með gang mála hjá sínu liði. Vísir/Getty Union Berlin er komið í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en liðið vann sigur á Mainz á heimavelli sínum í dag. Þá vann Dortmund stórsigur á Freiburg.
Union Berlin hefur gengið vel að undanförnu en fyrir leikinn í dag hafði liðið unnið þrjá leiki í röð í deild og bikar og sátu í öðru sæti Bundesligunnar, einu stigi á eftir Bayern Munchen. Kevin Behrens kom Union Berlin í 1-0 á 32.mínútu leiksins í dag og þannig var staðan í hálfleik. Gestirnir frá Mainz jöfnuðu metin úr vítaspyrnu á 78.mínútu en Bandaríkjamaðurinn Jordan Siebatcheu skoraði sigurmark Union á 84.mínútu leiksins. Með sigrinum fer Union Berlin upp fyrir Bayern Munchen og í toppsæti deildarinnar. Margfaldir meistarar Bayern eiga leik á morgun gegn Wolfsburg á útivelli og geta þá náð toppsætinu á nýjan leik. Borussia Dortmund er sömuleiðis með í toppbaráttunni en þeir jöfnuðu Bayern Munchen að stigum með 5-1 sigri á Freiburg á heimavelli í dag. Nico Schlotterback, Karim Adeyemi, Sebastian Haller, Julian Brandt og Giovanni Reyna skoruðu mörk Dortmund í dag en Dortmund skoraði fjögur mörk í síðari hálfleik eftir að staðan í leikhléi var 1-1. Önnur úrslit í þýska boltanum: FC Köln - RB Leipzig 0-0 Eintracht Frankfurt - Hertha Berlin 3-0 Vfl Bochum - Hoffenheim 5-2
Þýski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira