Hin ófullkomna og subbulega hlið pönksins X977 2. febrúar 2023 11:31 Hljómsveitin Sóðaskapur komst í úrslit Sykurmolans með lagið Mamma Ver.
Lagið Mamma ver fjallar um Roe v. Wade dómninn í Bandaríkjunum sem var snúið árið 2022 sem hindraði þungurrof kvenna. Hljómsveitarkonur eru þær Lára Snædal Boyce, Hildur Björg Jónsdóttir og Sientje Sólbjört Nína de Wagt. Þær lýsa hljómsveitinni sem "hinni ófullkomnu og subbulegu hlið pönksins. Lögin eru afköst áralangrar reiði gagnvart yfirvaldinu, feðraveldinu og kapítalismanum. Sóðaskapur einblínir á fegurðina í ljótleikanum og þau vandamál sem fylgja því að vera ungur meðlimur samfélagsins í dag. Markmið er – og hefur ávallt verið – að hafa gaman, og vonandi getum við skemmt öðrum líka. Því hvað eru menn ekki, nema sóðalegir?" Nafnið "Mamma Ver" var ekki komið þegar þær ákveða að taka þátt í Sykurmolanum, þannig að þegar þær senda lagið í keppnina þá hét lagið því sem tölvuskjalið hét, sem var Mamma Ver, Ver fyrir Version3 sem styttist í Ver. Þær muna ekki upprunarlega titilinn og því var hann hvort sem er ekki minnistæður. Danni Dæmalausi, dagskrágerðarmaður á X977, fór í heimsókn til þeirra í Kópavoginn og fékk að vita meira um hljómsveitina og lagið. Klippa: Sóðaskapur - Mamma ver Sóðaskapur gáfu út lagið Gellur borða pasta árið 2022 og fylgdu því eftir núna í janúar með laginu Gróðurhúsaáhrifin eru þér að kenna. Lögin sem komust í úrslit Sykurmolans eru í spilun á X977 út janúar, þau lög eru: Karma Brigade – Alive Winter Leaves – Feel Bucking Fastards – Don Coyote Beef – Góði hirðirinn Blankíflúr & Jerald Coop – Modular Heart Auður Linda – I´m Not The One Merkúr – Faster Burns The Fuse Sóðaskapur – Mamma ver Í byrjun febrúar fer svo fram kosning, hér á Vísi, sem mun eiga þátt í því að ráða hvaða listafólk hlýtur hvorki meira né minna en 250.000 kr. í verðlaun. Keppnin í ár er í samstarfi við Orku náttúrunnar
X977 Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Lífið Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Gagnrýni Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Varð að svara einni spurningu rétt til að fá eina milljón Lífið Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Fleiri fréttir Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira