Með tvo ólöglega leikmenn en sigurinn stendur Sindri Sverrisson skrifar 17. janúar 2023 15:31 Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði fernu fyrir Valskonur í risasigrinum gegn Fram. vísir/tjörvi týr Íslandsmeistarar Vals unnu 13-0 sigur gegn Fram í fyrsta leiknum í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta síðastliðinn föstudag. Sigurinn stendur, þrátt fyrir að Valur hafi teflt fram tveimur ólöglegum leikmönnum.
Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag. Það var nefnilega ekki nóg með að Valur væri með tvo ólöglega leikmenn heldur var lið Fram einnig ólöglega skipað því einn leikmanna liðsins, Auður Erla Gunnarsdóttir, spilaði leikinn þrátt fyrir að vera skráð í Hamar. Hjá Val voru þær Glódís María Gunnarsdóttir og Birta Ósk Sigurjónsdóttir með þrátt fyrir að vera skráðar í KH. Á vef KSÍ er vísað í ábendingar sem sendar voru til þátttakenda í Reykjavíkurmóti þess efnis að lið með ólöglegan leikmann teljist hafa tapað leik 0-3 nema að liðið hafi tapað með enn stærri mun, þá skuli sú markatala ráða. Hins vegar kemur ekkert fram í þessum reglum um hvað gerist ef bæði lið eru ólöglega skipuð og á vef KSÍ segir einfaldlega að úrslit leiksins standi. Félögin sem um ræðir fá hins vegar sekt í samræmi við reglugerð og nemur sekt Vals 90.000 krónum en sekt Fram 60.000 krónum. Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði fernu í leiknum, Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir þrennu, Þórdís Elva Ágústsdóttir og Eva Stefánsdóttir tvö mörk hvor, og þær Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir og Bryndís Eiríksdóttir eitt mark hvor. Valur og Fram eru í riðli með Víkingi og Fylki en Fylkiskonur unnu Víking 3-1 á föstudaginn. Fram mætir næst Fylki á fimmtudaginn á Framvelli en Valur tekur á móti Víkingi á Hlíðarenda á föstudaginn.
Íslenski boltinn Valur Fram Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Enski boltinn Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Handbolti Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Formúla 1 „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Íslenski boltinn Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Sjá meira