Fimmtíu bestu: Gleðigjafinn, veröld sársaukans og kjarnorkuverið úr Krikanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2023 10:01 Leikmennirnir sem enduðu í 40.-36. sæti í valinu á þeim bestu í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-36. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 40. Sigurður Eggertsson Lið: Valur (2001-10), Fram (2011-13) Staða: Leikstjórnandi Fæðingarár: 1982 Íslandsmeistari: 2007, 2013 Bikarmeistari: 2008, 2009 Silfur: 2002, 2004, 2009, 2010 Leikir í deild: 194 Mörk í deild: 507 Leikir í úrslitakeppni: 41 Mörk í úrslitakeppni: 92 Sigurður Eggertsson er ekki bara gleðigjafinn og sonur Agga Pó heldur einnig dúndur handboltamaður; eldsnöggur og skarpur sóknarmaður. Þótt flestir tengi Sigurð eflaust við Val, enda lék hann þar fyrstu níu árin á ferlinum og vann þrjá stóra titla, átti hann sitt besta tímabil með Fram. Sigurður gekk í raðir Fram 2011. Á fyrsta tímabili sínu hjá liðinu komst það í bikarúrslit en ekki í úrslitakeppnina. En tímabilið 2012-13 var draumi líkast í Safamýrinni. Sigurður Eggertsson fagnar eftir að Fram varð Íslandsmeistari 2013.ljósmynd jgk Fram toppaði þar á hárréttum tíma og varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið mjög svo sigurstranglega Hauka í úrslitaeinvígi, 3-1. Fram-liðið var vel samsett af yngri og eldri leikmönnum sem unnu vel saman. Sigurður var í seinni hópnum og átti stóran þátt í því að leiða Fram til fyrirheitna landsins á síðasta tímabili sínu í efstu deild. 39. Freyr Brynjarsson Lið: Valur (2000-05), Haukar (2005-13) Staða: Vinstra horn Fæðingarár: 1977 Íslandsmeistari: 2005, 2008, 2009, 2010 Bikarmeistari: 2010, 2012 Deildarmeistari: 2005, 2009, 2010, 2012, 2013 Silfur: 2001, 2004, 2013 Leikir í efstu deild: 289 Mörk í efstu deild: 724 Leikir í úrslitakeppni: 59 Mörk í úrslitakeppni: 129 Freyr Brynjarsson er orðabókarskilgreiningin á traustum liðsmanni og sennilega besti handboltamaðurinn sem hefur komið frá Suðurnesjum. Eftir tvö silfur með Val gekk Freyr í raðir Hauka um mitt tímabil 2004-05 sem reyndist heillaskref fyrir alla. Hann varð Íslandsmeistari með Haukum 2005, síðan komu tvö titlalaus tímabil áður en Aron Kristjánsson sneri aftur heim og tók við liðinu 2007. Undir hans stjórn urðu Haukar Íslandsmeistarar þrjú ár í röð og einu sinni bikarmeistari og tvisvar sinnum deildarmeistarar að auki. Freyr Brynjarsson vann heilan helling af titlum á flottum ferli.vísir/vilhelm Freyr var í lykilhlutverki í þessu Haukaliði; góður í sókn og enn betri í vörn. Hann lék oft fyrir framan í harðskeyttri 3-2-1 vörn Hauka í úrslitakeppninni 2010, meðal annars í oddaleiknum gegn Val í úrslitaeinvíginu. Freyr vann alls ellefu stóra titla með Haukum og lék tæplega 350 leiki í deild og úrslitakeppni á tímabilinu sem er undir í þessari umfjöllun. Hápunkturinn á ferli Freys kom samt á síðustu öld, þegar hann skoraði jöfnunarmarkið fræga í kærubikarúrslitaleik Vals og Fram. En sú saga á skilið heila heimildarmynd. 38. Einar Örn Jónsson Lið: Haukar (2000-02, 2008-11) Staða: Hægra horn Fæðingarár: 1976 Íslandsmeistari: 2001, 2009, 2010 Bikarmeistari: 2001, 2002, 2010 Deildarmeistari: 2002, 2009, 2010 Leikir í deild: 105 Mörk í deild: 281 Leikir í úrslitakepni: 28 Mörk í úrslitakeppni: 81 Talandi um leikmann sem tók þátt í kærubikarúrslitaleiknum og fór svo frá Val til Hauka. Og líkt og hjá Frey reyndust skiptin frábær fyrir Einar Örn Jónsson og Hauka. Einar var í lykilhlutverki hjá Haukum tímabilin 2000-01 og 2001-02 þar sem liðið vann fjóra af þeim sex stóru titlum sem í boði voru. Haukar komust einnig langt í Evrópukeppni 2000-01 og á leiðinni þangað skoraði Einar frægt sigurmark gegn Sporting á Ásvöllum. Einar Örn Jónsson átti sín bestu ár í Haukum.fréttablaðið Frammistaðan hjá Haukum skilaði Einari landsliðssæti og farseðli í atvinnumennskuna. Þegar hann sneri heim úr henni fór hann aftur í Hauka og tók upp þráðinn við að vinna titla, meðal annars þrennuna 2009-10. Einar nýtti færin sín afburðavel úr hægra horninu, var áræðinn og yfirvegaður í öllum sínum aðgerðum og bjó sér til gríðarlega flottan feril. 37. Gunnar Berg Viktorsson Lið: Fram (2000-01), Haukar (2007-2010) Staða: Vinstri skytta Fæðingarár: 1976 Íslandsmeistari: 2008, 2009, 2010 Bikarmeistari: 2010 Deildarmeistari: 2009, 2010 Valdimarsbikar: 2008 Besti varnarmaður: 2010 Leikir í deild: 86 Mörk í deild: 231 Leikir í úrslitakeppni: 15 Mörk í úrslitakeppni: 45 Ef þú óðst inn í Haukavörnina á árunum 2007-10 gerðirðu það á eigin ábyrgð. Þar buðu nefnilega Eyjamennirnir Gunnar Berg Viktorsson og Arnar Pétursson þig velkominn í veröld sársaukans eins og Walter í The Big Lebowski talaði svo oft um. Ef svo ólíklega vildi til að þú skoraðir fékkstu allavega marblett. Það var með öðrum orðum ekki að ástæðulausu að Rúnar Kárason, þáverandi leikmaður Fram, líkti Haukum við Bad Boys lið Detroit Pistons. Haukar tóku þessari samlíkingu fagnandi og spiluðu Bad Boys lagið fyrir leiki í úrslitakeppninni 2009. Gunnar Berg Viktorsson lauk ferlinum með Haukum og varð meðal annars Íslandsmeistari þrjú ár í röð með liðinu.fréttablaðið Gunnar Berg og Arnar voru ekki bara harðir í horn að taka heldur einnig frábærir í vörn og grunnurinn sem Haukar byggðu á til að koma sér aftur á sigurbraut eftir tvö titlalaus ár (2006-07). Á árunum 2008-10 unnu Haukar sex af þeim átta stóru titlum sem í boði voru, þar á meðal þrefalt 2010. Auk þess að vera í risahlutverki í vörn Hauka lét Gunnar Berg einnig til sín taka í sókninni. Þar var hann oft í því óeigingjarna hlutverki að spila hægra megin fyrir utan þrátt fyrir að vera rétthentur en leysti það með sóma. 36. Magnús Óli Magnússon Lið: FH (2011-15), Valur (2017-) Staða: Vinstri skytta/leikstjórnandi Fæðingarár: 1992 Íslandsmeistari: 2021, 2022 Bikarmeistari: 2021, 2022 Deild: 2020, 2022 Silfur: 2012 Valdimarsbikar: 2022 Leikir í deild: 183 Mörk í deild: 739 Leikir í úrslitakeppni: 31 Mörk í úrslitakeppni: 149 Líklega væri hægt að nýta kraftinn í líkama Magnúsar Óla Magnússonar sem orkugjafa fyrir bíla eða hita upp hús. Enda einn allra, allra kraftmesti leikmaður sem hefur spilað í deildinni hér heim og einn besti gegnumbrotsmaður hennar frá upphafi. Magnús Óli átti fín ár með FH en náði fyrst almennilegu flugi þegar hann kom í Val 2017. Liðinu vegnaði hins vegar ekkert sérstaklega fyrst eftir að hann kom á Hlíðarenda en það breyttist síðan svo um munaði. Magnús Óli Magnússon í kunnuglegri stöðu, að skilja óheppinn varnarmann eftir í reyk.vísir/hulda margrét Undanfarin tvö ár hefur Valur verið með langbesta lið landsins og unnið allt sem hægt er að vinna. Leikjum Magnúsar Óla hefur hins vegar fækkað talsvert enda mikið meiddur. Valsliðið er samt alltaf betra með hann innanborðs og stigin í riðlakeppni Evrópudeildarinnar væru eflaust fleiri ef hann hefði getað beitt sér að fullu. Hæfileikar hans koma nefnilega bersýnilega í ljós þegar hann spilar gegn betri leikmönnum sem hann stenst fyllilega snúning. Olís-deild karla 50 bestu Tengdar fréttir Fimmtíu bestu: 45.-41. sæti Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 45.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 31. janúar 2023 10:00 Fimmtíu bestu: 50.-46. sæti Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-46. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 30. janúar 2023 10:01 Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Fótbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Enski boltinn Stelpurnar unnu Svía Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Sjá meira
Lið: Valur (2001-10), Fram (2011-13) Staða: Leikstjórnandi Fæðingarár: 1982 Íslandsmeistari: 2007, 2013 Bikarmeistari: 2008, 2009 Silfur: 2002, 2004, 2009, 2010 Leikir í deild: 194 Mörk í deild: 507 Leikir í úrslitakeppni: 41 Mörk í úrslitakeppni: 92
Lið: Valur (2000-05), Haukar (2005-13) Staða: Vinstra horn Fæðingarár: 1977 Íslandsmeistari: 2005, 2008, 2009, 2010 Bikarmeistari: 2010, 2012 Deildarmeistari: 2005, 2009, 2010, 2012, 2013 Silfur: 2001, 2004, 2013 Leikir í efstu deild: 289 Mörk í efstu deild: 724 Leikir í úrslitakeppni: 59 Mörk í úrslitakeppni: 129
Lið: Haukar (2000-02, 2008-11) Staða: Hægra horn Fæðingarár: 1976 Íslandsmeistari: 2001, 2009, 2010 Bikarmeistari: 2001, 2002, 2010 Deildarmeistari: 2002, 2009, 2010 Leikir í deild: 105 Mörk í deild: 281 Leikir í úrslitakepni: 28 Mörk í úrslitakeppni: 81
Lið: Fram (2000-01), Haukar (2007-2010) Staða: Vinstri skytta Fæðingarár: 1976 Íslandsmeistari: 2008, 2009, 2010 Bikarmeistari: 2010 Deildarmeistari: 2009, 2010 Valdimarsbikar: 2008 Besti varnarmaður: 2010 Leikir í deild: 86 Mörk í deild: 231 Leikir í úrslitakeppni: 15 Mörk í úrslitakeppni: 45
Lið: FH (2011-15), Valur (2017-) Staða: Vinstri skytta/leikstjórnandi Fæðingarár: 1992 Íslandsmeistari: 2021, 2022 Bikarmeistari: 2021, 2022 Deild: 2020, 2022 Silfur: 2012 Valdimarsbikar: 2022 Leikir í deild: 183 Mörk í deild: 739 Leikir í úrslitakeppni: 31 Mörk í úrslitakeppni: 149
Olís-deild karla 50 bestu Tengdar fréttir Fimmtíu bestu: 45.-41. sæti Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 45.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 31. janúar 2023 10:00 Fimmtíu bestu: 50.-46. sæti Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-46. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 30. janúar 2023 10:01 Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Fótbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Enski boltinn Stelpurnar unnu Svía Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Sjá meira
Fimmtíu bestu: 45.-41. sæti Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 45.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 31. janúar 2023 10:00
Fimmtíu bestu: 50.-46. sæti Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-46. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. 30. janúar 2023 10:01