Hverjir fá góða jólagjöf frá Guðmundi? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. desember 2022 10:01 Hverjir fá góðar fréttir frá Guðmundi Guðmundssyni í dag? grafík/hjalti Á morgun, á 62 ára afmælisdaginn sinn, tilkynnir Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins, hópinn sem hann tekur með á HM í Svíþjóð og Póllandi í næsta mánuði.
Án þess að spilla spennunni eru baráttusætin í íslenska hópnum ekkert sérstaklega mörg. Þau eru þó nokkur og einhverjir leikmenn bíða eflaust í ofvæni eftir símtali frá Guðmundi og hvort þeir fái snemmbúna jólagjöf frá honum. Vera má með sextán leikmenn í hóp í hverjum leik en á síðustu tveimur mótum, HM 2021 og EM 2022, tók Guðmundur tuttugu leikmenn með á mótið. Þá var kórónuveirufaraldurinn hins vegar í fullum gangi sem flækti málin eins og Íslendingar fengu svo sannarlega að kynnast á EM 2022. Hver leikmaðurinn á fætur öðrum fékk veiruna skæðu, fór í sóttkví og nánast annar hver íslenskur handboltamaður var kallaður út til Ungverjalands eftir að það fór að kvarnast úr hópnum. Ísland endaði í 6. sæti á EM í upphafi þessa árs.EPA-EFE/TIBOR ILLYES Vonandi verður ekkert svoleiðis uppi á teningnum að þessu sinni og flestir búast við því að Guðmundur velji átján leikmenn í HM-hópinn sinn. Fjórtán leikmenn eru svo gott sem öruggir með sæti í hópnum en óvissuatriðin snúa að hægri vængnum, vinstra horninu og markvörðunum. Byrjum á markvörðunum. Björgvin Páll Gústavsson og Viktor Gísli Hallgrímsson verða alltaf í hópnum en eina spurningin er hvort Ágúst Elí Björgvinsson fer með eða ekki. Ágúst Elí Björgvinsson hefur leikið á fjórum stórmótum.vísir/hulda margrét Hafnfirðingurinn hefur verið með á síðustu tveimur mótum, er með nokkuð mikla reynslu og hefur oft reynst landsliðinu vel. Þá hefur Viktor Gísli glímt við meiðsli sem eykur líkurnar á að Ágúst Elí fari með til Svíþjóðar þar sem Ísland leikur leiki sína á HM. Síðan er það spurningin hver verður Bjarka Má Elíssyni til halds og trausts í vinstra horninu. Þar koma þrír til greina: Stiven Tobar Valencia, Orri Freyr Þorkelsson og Hákon Daði Styrmisson. Hákon Daði Styrmisson bíður þess enn að fara á sitt fyrsta stórmót.vísir/vilhelm Sá síðastnefndi hefði farið á EM 2022 en missti af mótinu eftir að hann sleit krossband í hné og Orri fór í staðinn. Hákon er hins vegar kominn aftur á ferðina og hefur leikið vel með Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni að undanförnu. Orri leikur með Noregsmeisturum Elverum sem eru líka í Meistaradeild Evrópu. Þeir hafa hins vegar fengið samkeppni frá Stiven. Hann virðist taka framförum með hverri mínútunni sem líður og hefur verið frábær með Val í Evrópudeildinni. Hann er með 83 prósent skotnýtingu sem er það hæsta meðal þrjátíu markahæstu leikmanna keppninnar. Stiven hefur það fram yfir Hákon og Orra að hann er framúrskarandi varnarmaður og getur spilað bakvörð í vörn. Það gæti því gefið Aroni Pálmarssyni tækifæri til að hvíla sig í horninu eða jafnvel Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. Stiven var hins vegar ekki valinn í síðasta landsliðshóp, fyrir leikina gegn Ísrael og Eistlandi í undankeppni EM. Og ef Guðmundur hefði ætlað að velja Stiven í HM-hópinn hefði hann líklega tekið hann með í þessa tvo frekar þægilegu leiki. En Stiven á samt góða möguleika á að fara á HM og hans tími með landsliðinu kemur fyrr en síðar. Loks er það hægri vængurinn en þar berjast þrír leikmenn líklega um tvær stöður, þeir Óðinn Þór Ríkharðsson, Kristján Örn Kristjánsson og Teitur Örn Einarsson. Guðmundur hefur venjulega á sínum landsliðsþjálfaraferli, bæði með Ísland og Danmörku, reynt að komast af með eins fáa hornamenn og mögulegt er í hópum á stórmótum. Það rýrir möguleika Óðins sem hlaut ekki náð fyrir augum Guðmundar fyrir EM í janúar. Þar fór Teitur með sem skytta og hornamaður til vara en spilaði aðeins örfáar mínútur í horninu. Sigvaldi Guðjónsson spilaði hins vegar mest allra leikmanna á mótinu og borgaði brúsann af því eftir það. Fjölhæfni Teits Arnar Einarssonar gæti skilað honum sæti í HM-hópnum.vísir/hulda margrét Óðinn lék hins vegar vel með landsliðinu í umspilsleikjunum gegn Austurríki þegar Sigvaldi var fjarri góðu gamni vegna meiðsla og hefur nýtt sín fáu tækifæri með landsliðinu vel. Þá hefur Óðinn spilað frábærlega með Kadetten Schaffhausen eftir að hann kom til baka eftir ristarbrot, bæði í Evrópudeildinni og svissnesku úrvalsdeildinni. Þar eru þjálfarar mjög meðvitaðir um getu Óðins og reyna allt hvað þeir geta til að loka hægra horninu eins og Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Kadetten, sagði í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar. Kristján Örn hefur glímt við meiðsli að undanförnu sem gæti veikt möguleika hans á að fara með til Svíþjóðar. Hann var ekki valinn í síðasta landsliðshóp en kom inn þegar Ómar Ingi Magnússon hrökk úr skaftinu og spilaði meira en Teitur í leikjunum gegn Ísrael og Eistlandi og komst mjög vel frá sínu. Kristján Örn hefur líka eiginleika sem aðrir útispilarar Íslands hafa ekki. Hann býr yfir mikilli íþróttamennsku og getur skotið af löngu færi sem gæti komið í góðar þarfir á löngu móti eins og HM. Ísland Ísrael. Landslið karla vetur 2022 handbolti HSÍ. Daníel Þór Ingason er eflaust líka vongóður um að fara með á HM en erfitt er að sjá fyrir hvern það ætti að vera. Hann gæti þó farið með ef Guðmundur velur bara tvo markverði. Ólafur Guðmundsson hefur spilað á fjölmörgum stórmótum og reynst landsliðinu þarfur þjónn en svo virðist sem Elvar Ásgeirsson hafi tekið sæti hans í hópnum. Ísland er í riðli með Portúgal, Ungverjalandi og Suður-Kóreu á HM sem hefst 12. janúar.
HM 2023 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Guðlaug Edda á von á barni Sport Víkingur - Vestri | Hver verður meistari meistaranna? Íslenski boltinn Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Sport Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Enski boltinn Féll og lést skömmu fyrir fyrsta leik á nýuppgerðum HM leikvangi Fótbolti Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Fótbolti Antonelli vann aftur og tók met af Hamilton Formúla 1 Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Enski boltinn Tudor hættir störfum hjá Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Haukakonur komnar í 1-0 yfir eftir góðan endakafla Haukur Þrastar var stórkostlegur í stórsigri Ljónanna Gísli, Ómar og Elvar stigu stórt skref í átt að þýska titlinum Donni sótti mikilvægt stig gegn lærisveinum Arnórs Valskonur hnykluðu vöðvana í lokaumferðinni Fram tók forystuna í einvíginu gegn ÍR Vill ekki koma heim með „kúkinn á bakinu“ eftir dvöl hjá Barcelona „Hann lýgur bara til að komast undan þessu“ Fjölnir vann fyrsta leikinn Neitaði að hefja seinni hálfleik fyrr en stuðningsmenn hlýddu „Of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það“ „Þetta eru tveir úrslitaleikir“ FH-ingar 1-0 yfir á móti meisturunum Haukarnir léku sér að Mosfellingum í fyrsta leik Strákarnir okkar með Serbíu og Úkraínu í riðli Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð „Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óðinn var fullkominn í flottum sigri Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Elvar með stórleik í flottum sigri Sjá meira