Martínez útskýrir fagnið umdeilda Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. desember 2022 07:32 Emilano Martínez bregður á leik með verðlaunin sem hann fékk fyrir að vera valinn besti markvörður HM í Katar. getty/Alex Livesey Emiliano Martínez, markvörður heimsmeistara Argentínu, hefur útskýrt af hverju hann fagnaði eins og gerði eftir að tók við verðlaununum fyrir að vera besti markvörður HM í Katar.
Martínez átti risastóran þátt í því að Argentína varð heimsmeistari í þriðja sinn. Í úrslitaleiknum á sunnudaginn varði hann frá Randal Kolo Muani í uppbótartíma framlengingarinnar og svo spyrnu Kingsleys Coman í vítakeppninni. Martínez var valinn besti markvörður HM en uppátæki hans eftir að hann tók við verðlaunagripnum vakti nokkra athygli. Hann hélt honum fyrir framan miðsvæðið á sér, hallaði sér aftur og gretti sig. Markvörðurinn hefur núna greint frá því af hverju hann lét eins og hann lét á verðlaunaathöfninni. „Ég gerði þetta því frönsku stuðningsmennirnir púuðu á mig. Ég tengi ekki við hroka þeirra,“ sagði Martínez við argentínska sjónvarpsstöð. Hann var í miklum ham eftir leikinn og þegar Argentínumenn komu inn í búningsklefa bað hann þá um einnar mínútu þögn fyrir Kylian Mbappé sem skoraði þrennu í úrslitaleiknum. Aðeins eitt og hálft ár er síðan hinn þrítugi Martínez lék sinn fyrsta landsleik. Síðan þá hefur hann hjálpað Argentínumönnum að vinna Suður-Ameríkukeppnina og HM.
HM 2022 í Katar Mest lesið Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Golf Dagskráin í dag: Heil umferð í Bestu karla, enski boltinn og ögurstund í Njarðvík Sport Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Handbolti „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Fótbolti Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Fótbolti Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Körfubolti Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Fótbolti Bríet treður upp á stórleiknum Íslenski boltinn Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Guðrún og stöllur náðu fram hefndum og urðu bikarmeistarar Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum „Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Kane endaði deildina með þrennu gegn Ísaki og félögum Eyjakonur og Austfirðingar flugu áfram í átta liða úrslit Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Celtic tók titilinn í lokaumferðinni Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Viktor Bjarki missir af lokaleiknum vegna meiðsla Bríet treður upp á stórleiknum Lewandowski á förum frá Barcelona „Mourinho er númer eitt“ Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Sjá meira