Carrick gerist knattspyrnustjóri Sindri Sverrisson skrifar 19. október 2022 16:30 Michael Carrick fékk nasaþefinn af því að starfa sem knattspyrnustjóri hjá Manchester United. Getty/Matthew Peters Michael Carrick, fyrrverandi leikmaður Manchester United, Tottenham og West Ham, er orðinn knattspyrnustjóri og hefur samþykkt að taka við enska B-deildarliðinu Middlesbrough.
Sky Sports greinir frá þessu. Carrick tekur við Boro í 22. sæti næstefstu deildar Englands en félagið rak Chris Wilder í byrjun þessa mánaðar og hefur Leo Percovich stýrt liðinu til bráðabirgða. Carrick hefur einmitt reynslu af því að stýra liði til bráðabirgða en það gerði hann hjá Manchester United um skamma hríð fyrir tæpu ári síðan, eftir að Ole Gunnar Solskjær var rekinn og þar til að Ralf Rangnick tók við. Áður hafði Carrick verið í þjálfarateymi United frá því að hann lagði skóna á hilluna árið 2018, og starfaði hann bæði með José Mourinho og Solskjær. Samkvæmt Sky Sports mælti enski landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate með Carrick í starfið hjá Middlesbrough en Southgate er með sterk tengsl við félagið eftir að hafa verið þar leikmaður og knattspyrnustjóri. Carrick, sem er 41 árs, gæti stýrt Middlesbrough í fyrsta sinn á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Huddersfield. Fyrst spilar liðið hins vegar við Wigan í kvöld. Fimm af fyrstu sjö leikjum Carricks í starfi verða á útivelli, áður en við tekur hlé vegna HM í nóvember.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Sjá meira