Segist ekki vera að spara sig fyrir HM Valur Páll Eiríksson skrifar 20. september 2022 08:31 Van Dijk hefur sætt gagnrýni. Matteo Ciambelli/DeFodi Images via Getty Images Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, hefur sætt gagnrýni fyrir slaka frammistöðu á fyrstu vikum tímabilsins. Hann hefur verið sakaður um að spara krafta sína fyrir komandi heimsmeistaramót í fótbolta, ásakanir sem hann vísar á bug.
Van Dijk hefur verið á meðal betri miðvarða heims frá því að Liverpool greiddi Southampton 75 milljónir punda fyrir Hollendinginn í janúar 2018. Hann hefur átt stóran þátt í velgengni Liverpool frá þeim tíma og hefur unnið alla þá stóru titla sem standa félagsliðum til boða. Hallað hefur undan fæti í upphafi yfirstandandi leiktíðar þar sem van Dijk, ásamt Liverpool-liðinu öllu, hefur ekki verið upp á sitt besta. Því hefur verið kastað fram að sá hollenski sé að spara sig svo hann komist örugglega á HM í Katar í vetur en hann hefur aldrei tekið þátt á stórmóti. Van Dijk missti af EM sem fór fram í fyrra vegna krossbandameiðsla en hann segir það fjarri sannleikanum að hann stígi varlega til jarðar þessa dagana til að forðast meiðsli í aðdraganda HM. Alls ekki, alls ekki, sagði miðvörðurinn. Ég get fullvissað þig um að það er klárlega ekki staðan. Við erum ekki í þessari stöðu vegna þess, sagði van Dijk við blaðamann sem spurði út í sögusagnirnar. Holland er í A-riðli HM í vetur ásamt Ekvador, Senegal og gestgjöfum Katara.
HM 2022 í Katar Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira