Hrókeringar í málinu sem skekur skákheiminn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. september 2022 13:00 Hans Niemann opnaði sig upp á gátt í viðtali eftir að hafa sigrað heimsmeistarann Magnus Carlsen. Chess24.com Magnus Carlsen, ríkjandi heimsmeistari í skák, taldi brögð vera í tafli er hann tapaði fyrir Hans Niemann á Sinquefield-ofurmótinu svokallaða á dögunum. Carlsen hætti keppni, og gaf þannig frá sér möguleikann á að vinna fúlgur fjár ásamt því að gefa til kynna að Niemann hefði unnið á óheiðarlegan hátt. Nú hefur Niemann svarað fyrir sig.
Eftir að Carlsen ákvað að draga sig úr keppni þá setti hann inn færslu á Twitter-síðu sína sem gerði það nokkuð augljóst að hann taldi hafa verið svindlað á sér. Eins og áður hefur komið fram gerðist Niemann sekur um svindl á skáksíðunni Chess.com fyrir nokkrum árum. Þegar þessi 19 ára gamli skákmaður óð upp heimslistann töldu því margir að hann væri með óhreint mjöl í pokahorninu. Sem stendur er Niemann í 39. sæti heimslistans og ekki bætti úr skák að Carlsen hafði ekki tapað í síðustu 53 skákum sem hann hefur keppt í. Carlsen, og eflaust fleiri, eru vissir um að Niemann hafi á einhvern hátt svindlað án þess þó að geta sannað það. Á miðvikudag mætti Niemann í viðtal á vefsíðu Sinquefield-mótsins, sem er vani eftir hverja skák, en í stað þess að fara í klisjur og þetta sem við þekkjum er rætt er við íþróttafólk að leik loknum þá opnaði Niemann sig upp á gátt. Í viðtalinu – sem sjá má hér að neðan – viðurkennir Niemann að hafa svindlað á Chess.com þegar hann var aðeins 12 ára gamall. Fyrir þremur árum síðan, 16 ára gamall, freistaðist Niemann aftur til að svindla er hann hélt úti streymi af sér að spila við aðra skákmenn. Hann tók sérstaklega fram aðeins hafi verið um eina skák að ræða og þetta hafi verið hans stærstu mistök á lífsliðinni. „Ég hef lært af mistökum mínum. Ég hef fórnað öllu fyrir skákina og geri allt sem í mínu valdi stendur til að verða betri,“ segir Niemann meðal annars í viðtalinu. Í kjölfarið fer hann yfir hvernig undanfarin tvö ár hafi hann gert lítið sem ekkert annað en að lesa sér til um og horfa á skák ásamt því að tefla sjálfur. Alls hafi tólf klukkustundir á dag farið í að bæta hann sem skákmann. Í raun færi hann ekki út úr húsi og varla verið í samskiptum við fólk nema mögulega þá sem komu með heimsendan mat til hans. Það virðist sem viðtalið hafi bætt ímynd Niemann og ef marka má samfélagsmiðla virðist sem Carlsen eigi leik nú. Geti hann ekki sannað að Niemann hafi svindlað þá þarf fimmfaldi heimsmeistari ef til vill að sætta sig við að hafa tapað gegn betri skákmanni. I've withdrawn from the tournament. I've always enjoyed playing in the @STLChessClub, and hope to be back in the future https://t.co/YFSpl8er3u— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) September 5, 2022 Eitthvað sem maðurinn sem Carlsen birti myndband af í tísti sínu hefur gert oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á sínum eigin ferli.
Ásakanir um svindl í skákheiminum Skák Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Íslendingar spila jólabolta á Englandi Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Jólagleði í Garðinum Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum „Ég elska peninga“ Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Síðasti dansinn hjá Kelce? Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Sjá meira