Porsche blæjubíllinn sem var aldrei smíðaður Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 5. ágúst 2022 07:00 Topplaus Cayenne. Porsche hefur nú birt frumgerð af blæju útgáfu af Cayenne sem er nú orðin 20 ára. Frumgerðin var kynnt sem hluti af 20 ára afmæli Cayenne. Hún er ekki ökuhæf og er í raun lítið annað en skelin.
Afturendi bílsins er ekki samhverfur, en innanhúss hjá Porsche gátu hönnuðir ekki sammælst um einn afturenda svo frumgerðin var smíðuð með báðum útgáfum. Auk þess er hann tveggja dyra. Bíllinn var aldrei þróaður frekar vegna þess að Porsche var ekki sannfært um að hann gæti skilað hagnaði, sem og hvort hann samsvaraði sér í samanburði við hina bílana í línunni. Tvískiptur afturendinn sem verður ævinlega áminning um að stundum er betra að taka ákvörðun og halda áfram en þrætta að eilífu. Samkvæmt Porsche var markmiðið með verkefninu að ákveða hvot Targa toppurinn yrði bærilegur fyrir farþega í aftursætunum, sem og til að hanna sambrjótandi, mjúkan topp sem fer nógu hratt niður. Hvað varðar hraðan á samanbrjótanlegum toppnum, sóttu Porsche verkfræðingarnir ekki vatnið yfir lækinn heldur sóttu það á Porsche 911 Targa. Það er skottlok sem opnast bæði á framan og aftan. Þá getur það tekið við blæjunni. Kerfið var þó aldrei sett á bíllinn, heldur var það allt handvirkt á frumgerðinni. Vangasvipur blæju Cayenne bílsins. „Með blæju jepplinga er hönnunin alltaf áskorun bæði útlitslega og formslega. Jepplingur er alltaf með stóra yfirbyggingu og þunga. Ef þú setur þetta í samhengi við lítinn og léttan topp sem hægt er að taka af: þá er líklegt að formið verði skrítið,“ sagði Michael Mauer, núverandi yfirhönnuður Porsche. Porsche hannaði einnig sjö sæta útgáfu af Cayenne með lengra hjólhafi. Porsche hefur nýlega staðfest að unnið sé að rafbíl sem er stærri en Cayenne, sem má kannski taka sem andlegum arftaka sjö manna Cayenne, sem aldrei varð eða hefur orðið hingað til.
Mest lesið Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Innlent Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Innlent Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Innlent Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Innlent Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Innlent Héldu styrktartónleika fyrir kristna flóttamenn Innlent