Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 22. júlí 2022 22:05 Ytri-Rangá á fallegum degi. mynd/ gar Nú er júlí senn á enda og það verður að segjast eins og er að sumarið hefur ekki alveg staðið undir væntingum í laxveiðinni.
Það er kannski líka það að veiðimenn vonast alltaf eftir góðum sumrum en þau hafa verið fá síðan 2015 en auðvitað með undantekningum þar sem sumar árnar hafa átt frábært sumar á meðan aðrar hafa skilað lélegri veiði. Nýr listi frá Landssambandi Veiðifélaga kom í morgun og það sést vel á honum þegar rýnt er í tölur að þetta sumar er langt frá því að vera gott. Ytri Rangá og Hólsá hefur tekið toppsætið af Urriðafossi en nú hafa veiðst 769 laxar eftir tæplega 400 laxa viku sem er frábær veiði. Urriðafoss hefur skilað 116 löxum í síðustu viku og heildartalan þar er þá 701 lax. Veiðin í síðustu viku í Norðurá var eftir þessum tölum frábær en 191 lax veiddist í ánni og heildartalan þar er þá komin í 711 laxa. Margar árnar á vesturlandi eru ennþá að fá nokkuð reglulegar göngur sem sést þegar tölurnar eru skoðaðar en ásamt góðri veiði í Norðurá var vikan í Þverá og Kjarrá 179 laxar og í Langá með 145 laxa. Listann í heild sinni má finna á www.angling.is
Stangveiði Mest lesið Strippið og dauðarekið Veiði Veður gerir veiðimönnum erfitt um vik Veiði Laxinn mættur í Breiðdalsá og fín veiði í Fögruhlíðará Veiði Stóra Laxá að ná 400 löxum Veiði Veðrið gerir veiðimönnum lífið leitt Veiði Ekki skjóta trén á Skagaströnd Veiði Fín bleikjuveiði og þétt setnir bakkar Veiði Kennslumyndband um notkun tökuvara í veiði Veiði Áhyggjur af vatnsleysi í ánum í sumar Veiði Frægir í laxveiði á Íslandi Veiði