Daníel neitar að hafa myrt bekkjarsystur sína Árni Sæberg skrifar 19. júlí 2022 12:12 Daníel var handtekinn af lögreglunni í Kaliforníu í maí á síðasta ári. Myndin tengist fréttinni ekki neitt. Sarah Reingewirtz/getty Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Kern-sýslu í Kaliforníu í gær. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt fyrrverandi bekkjarsystur sína og limlest lík hennar.
Að morgni dags 18. maí í fyrra fannst Daníel Gunnarsson í bílskúr á heimili stjúpföður síns í Ridgecrest með lík Katie Pham, 21 árs stúlku, við hlið sér. Samkvæmt dómsgögnum sem fréttastofa 17 News hefur undir höndum voru buxur, hendur og háls Daníels útataðar í blóði. Að mati réttarmeinafræðings var Pham stungin til bana en hún var með fjölda stunguáverka á líkama og höfði. Talið er að Daníel hafi notað ísnál við verknaðinn. Daníel var handtekinn á staðnum og játaði fyrir lögreglumönnum að hafa orðið Pham að bana. Fréttablaðið hefur hins vegar eftir Sally Garcia, staðgengli saksóknara í Kern-sýslu, að Daníel hafi neitað sök þegar mál hans var tekið fyrir í gær. Að sögn Fréttablaðsins var upphaflega úrskurðað að Daníel skyldi vistaður á viðeigandi stofnun. Á dögunum hafi geðlæknir metið það svo að Daníel væri reiðubúinn til að svara til saka. Því hafi mál hans verið tekið upp á ný.
Bandaríkin Íslendingar erlendis Mál Daníels Gunnarssonar Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Sjá meira