Toppliðin skildu jöfn og Víkingur upp í þriðja sæti Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. júní 2022 21:09 FH-ingar eru á toppnum í Lengjudeildinni. Vísir/Anton Þrír leikir voru á dagskrá í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. FH og Tindastóll skiptu stigunum á milli sín þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli í toppslag deildarinnar, Víkingur R. lyfti sér upp í þriðja sætið með 0-2 sigri gegn Fjölni og Grindavík og Fylkir gerðu markalaust jafntefli.
Það var Hugrún Pálsdóttir sem kom Tindastóli yfir gegn FH í Hafnarfirðinum í kvöld með marki á 22. mínútu og sá til þess að staðan var 0-1 þegar gengið var til búningsherbergja. Eftir þunga sókn heimakvenna í síðari hálfleik var það svo hún Telma Hjaltalín Þrastardóttir sem jafnaði metin fyrir FH-inga á 83. mínútu og tryggði liðinu 1-1 jafntefli. FH og Tindastóll sitja því enn í efstu tveimur sætum deildarinnar, en bæði lið hafa náð í 20 stig. FH er þó með betri markatölu og hafa leikið einum leik minna. Þá skoraði Sigdís Eva Bárðardóttir bæði mörk Víkings er liðið vann 0-2 sigur gegn Fjölni fyrr í kvöld. Sigurinn lyfti liðinu tímabundið upp í annað sæti deildarinnar, en eftir jafntefli FH og Tindastóls sitja Víkingar í þriðja sæti með 19 stig. Fjölnir situr hins vegar í næst neðsta sætinu með fjögur stig. Að lokum gerðu Grindavík og Fylkir markalaust jafntefli í Grindavík, en liðin sitja í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar. Grindavík er með átta stig eftir níu leiki, en Fylkir sjö stig eftir átta leiki
Lengjudeild kvenna FH Tindastóll Víkingur Reykjavík Fjölnir UMF Grindavík Fylkir Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Sjá meira