Hefði kostað Keflavík eina milljón dollara Sindri Sverrisson skrifar 28. júní 2022 17:01 Ivan Kaliuzhnyi staldraði stutt við hjá Keflavík en heillaði með frammistöðu sinni. Keflavík Úkraínski miðjumaðurinn Ivan Kaliuzhnyi hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Keflavík í Bestu deildinni í fótbolta en lánssamningur hans rennur út í byrjun næsta mánaðar.
Kaliuzhnyi féll í hendur Keflvíkinga í vor þegar hann kom að láni frá FK Oleksandriya vegna stríðsins í Úkraínu. Hann er 24 ára miðjumaður og lék sjö leiki fyrir Keflavík. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, segist í samtali við Fótbolta.net vera að horfa á eftir einum besta leikmanni sem spilað hafi á Íslandi. „Mér finnst hann hafa siglt svolítið undir radarinn í fjölmiðlum á Íslandi. Þetta er held ég einn besti leikmaður sem hefur spilað á Íslandi, enda er hann byrjunarliðsmaður í sjötta besta liði Úkraínu sem er áttunda besta deild í Evrópu. Ég held að þeir sem hafi séð hann eftir fyrstu leikina geti verið sammála mér í því,“ segir Sigurður Ragnar við Fótbolta.net. Keflavík freistaði þess að halda leikmanninum: „Við reyndum mjög mikið að halda honum. Hann er samningsbundinn Oleksandriya í þrjú ár í viðbót og eigandinn sagði að Ivan væri til sölu á eina milljón dollara,“ segir Sigurður Ragnar. Þjálfarinn bætir því við að Keflvíkingar séu nú að leita að liðsstyrk og hafi áhuga á að sækja sér 1-2 leikmenn.
Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Gefa Íslandi aðeins fimmtán prósent líkur Fótbolti McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira