FH á leið í átta liða úrslit eftir öruggan sigur | Ægir áfram eftir dramatík Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. júní 2022 21:08 Björn Daníel Sverrisson skoraði tvö mörk fyrir FH í kvöld. vísir/daníel FH-ingar eru á leið í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir öruggan 6-1 sigur gegn ÍR í kvöld. FH leikur í Bestu-deildinni, en ÍR-ingar í 2. deild, og því komu úrslitin ekkert sérlega á óvart.
Björn Daníel Sverrisson kom heimamönnum í FH yfir strax á sjöttu mínútu leiksins áður en Guðmundur Kristjánsson tvöfaldaði forystu FH-inga tíu mínútum síðar. Þriðja mark FH-inga skoraði Björn Daníel Sverrisson á 48. mínútu, en Baldur Logi Guðlaugsson bætti fjórða markinu við mínútu síðar. Það var svo Steven Lennon sem skoraði fimmta mark heimamanna áður en Már Viðarsson minnkaði muninn fyrir ÍR með marki af vítapunktinum þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. Máni Austmann Hilmarsson gulltryggði svo að lokum sigur FH-inga þegar hann skoraði sjötta mark liðsins í uppbótartíma. Niðurstaðan því öruggur 6-1 sigur FH-inga sem eru á leið í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins, en ÍR-ingar sitja eftir með sárt ennið. Þá vann Ægir frá Þorlákshöfn dramatískan 1-0 sigur gegn Fylki og er á leik í átta liða úrslit. Ægir leikur í 2. deild en Fylkir í Lengjudeildinni og sigur Þorlákshafnarbúa því heldur óvæntur. Það var Ágúst Karel Magnússon sem skoraði markið sem skildi liðin að á þriðju mínútu uppbótartíma og Ægir því á leið í átta liða úrslit. Upplýsingar um úrslit og markaskorara fengust á Fótbolti.net.
Mjólkurbikar karla FH ÍR Fylkir Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Sjá meira