Blikar nú í hópi liða þar sem öll hin hafa orðið Íslandsmeistarar með stæl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2022 15:30 Ísak Snær Þorvaldsson fagnar einu af sjö mörkum sínum í fyrstu sjö umferðum Bestu deildarinnar. Vísir/Hulda Margrét Blikar eiga Íslandsmeistaratitillinn vísann í haust ef marka má sögu Íslandsmóts karla í fótbolta.
Breiðablik vann 4-3 sigur á Fram í Kópavoginum gærkvöldi og er nú komið með 21 stig og 23 mörk skoruð í fyrstu sjö umferðunum. Sjö sigrar í sjö fyrstu leikjunum. Fimm önnur lið hafa náð þessu í sögu alls Íslandsmóts karla og niðurstaðan á hausti hefur alltaf verið sú sama. FH 2005, ÍA 1995, Valur 1978, Keflavík 1973 og KR 1959 unnu nefnilega líka öll sjö fyrstu leiki sína líka og þau unnu ekki aðeins Íslandsmótið heldur burstuðu það eins og sjá má hér fyrir neðan. KR 1959 endaði með fullt hús stiga úr tíu leikjum og kláraði mótið með níu stigum meira en ÍA sem varð í öðru sæti. Keflavík 1973 tapaði ekki leik (12 sigrar og 2 jafntefli) og fékk fimm stigum meira en Valur sem varð í öðru sæti. Valsmenn 1978 töpuðu ekki leik, náðu í 35 stig af 36 mögulegum og endaði með sex stigum meira en ÍA sem varð í öðru sæti. Þessi þrjú tímabil var tveggja stiga reglan en ekki þrjú stig gefin fyrir sigur. Munurinn var því meiri en þetta kannski lítur út fyrir. ÍA 1995 vann tólf fyrstu leiki sína á mótinu og endaði með 49 stig af 54 mögulegum og með fjórtán stigum meira en KR sem varð í öðru sæti. FH 2005 vann fimmtán fyrstu leiki sína og var búið að vinna titilinn þegar þrjár umferðir voru eftir og liðið enn með fullt hús. FH tapaði reyndar næstu tveimur leikjum.
Breiðablik Besta deild karla Mest lesið „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Gummi Ben fékk hláturskast ársins Fótbolti Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Fótbolti Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Fótbolti María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Fótbolti Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Enski boltinn „Menn beita öllum brögðum“ Enski boltinn Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Enski boltinn „Vont að vakna einn daginn og geta ekki gert það sem ég vil“ Sport Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira