Framarar mögulega leikið sinn síðasta leik í Safamýri Sindri Sverrisson skrifar 9. maí 2022 14:01 Framarar gerðu 1-1 jafntefli við Skagamenn í síðasta heimaleik sínum og það gæti hafa verið allra síðasti leikur þeirra í Safamýri. vísir/vilhelm Víkingar samþykktu beiðni Framara um að víxla á heimaleikjum og því munu liðin mætast í Fossvogi á fimmtudagskvöld, í 5. umferð Bestu deildar karla í fótbolta.
Framarar hafa byrjað Íslandsmótið á sínum gamla heimavelli í Safamýri á meðan að þess er beðið að gervigras verði lagt á nýjan heimavöll þeirra í Úlfarsárdal. Óvíst er enn hvenær nýi völlurinn verður tilbúinn til notkunar en Daði Guðmundsson, rekstrarstjóri knattspyrnu hjá Fram, sagði við Vísi í morgun að til stæði að framkvæmdir hæfust í dag við lagningu gervigrassins. Þá þarf að sjá hvernig framkvæmdum vindur fram en næstu heimaleikir karlaliðs Fram eru gegn Leikni í Mjólkurbikarnum 26. maí og svo gegn Val í Bestu deildinni sunnudagskvöldið 29. maí. Kvennalið Fram leikur sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu í 2. deildinni gegn ÍA þann 25. maí og sem stendur eru allir þrír leikirnir skráðir í Úlfarsárdal á vef KSÍ. Framarar, sem leika nú á nýjan leik í efstu deild karla eftir langa bið, hafa fengið tvö stig úr síðustu tveimur leikjum sínum í Bestu deildinni, eftir töp gegn KR og FH í fyrstu tveimur umferðunum. Þeir gerðu 1-1 jafntefli við ÍA í síðasta heimaleik. Framarar léku síðast í efstu deild árið 2014. Þá léku þeir heimaleiki sína á þjóðarleikvangi Íslendinga, Laugardalsvelli.
Besta deild karla Fram Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira