Guðlaugur Victor lagði upp er Schalke tók toppsætið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. apríl 2022 13:32 Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Schalke eru á góðri leið með að tryggja sér sæti í efstu deild. Thomas Eisenhuth/Getty Images Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Schalke eru nú með tveggja stiga forskot á toppi þýsku B-deildarinnar í fótbolta eftir 5-2 útisigur gegn Darmstad í dag.
Fyrir leikinn voru þrjú lið jöfn á toppnum, en ásamt Schalke höfðu St. Pauli og Werder Bremen öll 53 stig. St. Pauli hafði þó leikið einum leik meira og því var dauðafæri fyrir bæði Schalke og Werder Bremen að skilja samkeppnisaðilann eftir. Leikurinn hófst þó ekki nægilega vel fyrir Guðlaug Victor og félaga því heimamenn náðu forystunni strax á 11. mínútu, en gestirnir í Schalke jöfnuðu þó metin aðein þremur mínútum síðar. Á 24. mínútu kom Guðlaugur Victor inn af varamannabekknum fyrir meiddann Danny Latza og fimm mínútum síðar var liðið komið með 2-1 forystu. Sú forysta lifði þó ekki lengi því heimamenn jöfnuðu örfáum mínútum síðar, áður en Marius Bulter sá til þess að gestirnir í Schalke fóru með 3-2 forystu inn í hálfleikinn. Guðlaugur Victor lagði svo upp fjórða mark Schalke snemma í síðari hálfleik, en þar var Marius Bulter aftur á ferðinni. Bulter fullkomnaði svo þrennu sína eftir klukkutíma leik og gerði þar með út um leikinn. Niðurstaðan varð 5-2 útisigur Schalke, en á sama tíma gerði Werder Bremen jafntefli. Schalke trónir nú á toppi þýsku B-deildarinnar þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir og er á góðri leið með að tryggja sér sæti í efstu deild á næsta tímabili. Efstu tvö lið deildarinnar fara beint upp, en liðið sem hafnar í þriðja sæti fer í umspil. Guðlaugur Victor og félagar eru þó ekki búnir að tryggja þetta enn. Pakkinn er þéttur og aðeins sex stig skilja þá frá Nurnberg sem situr í fimmta sæti deildarinnar.
Þýski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira