Hjúkrunarfræðingurinn sem elskar að vera sauðfjárbóndi Kristján Már Unnarsson skrifar 5. mars 2022 15:15 Svala Björk Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sauðfjárbóndi í Tungu í Bolungarvík, er langafabarn Einars Guðfinnssonar. Arnar Halldórsson „Ég er sem sagt hjúkrunarfræðingur og vinn hérna á Bergi, hjúkrunarheimilinu. En svo er ég með 130 ær en er í samkrulli með tengdapabba, sem er með 250," segir Svala Björk Einarsdóttir, sem er í hópi fjölmargra sauðfjárbænda í Bolungarvík.
Í þættinum Um land allt á Stöð 2 kynnumst við sveitabyggðinni að baki sjávarplássinu. Í dölunum inn af Bolungarvík var stundaður landbúnaður frá fornu fari og enn í dag finnst þar samfélag bænda. Í Skálavík, sem er einskonar bakgarður Bolvíkinga, var einnig fjöldi bújarða fram á miðja síðustu öld. Féð vigtað í fjárhúsunum hjá Sigurgeiri Jóhannssyni í Minni-Hlíð.Arnar Halldórsson Á túnum við bæina Þjóðólfstungu og Minni-Hlíð sjáum við fjölda sauðfjár og þegar við kíkjum inn í fjárhúsin er mikið um að vera. Sauðfjárbændurnir Sigurgeir Jóhannsson og tengdadóttir hans, Svala Björk, eru ásamt fleirum að vigta féð. Sjálf segist Svala bara kalla sig hobbíbónda. -En eruð þið að gera þetta fyrst og fremst til ánægju eða lifið þið á þessu? „Nei, þetta er aukabúgrein. Það getur held ég enginn lifað á sauðkindinni. Þetta er of skemmtilegt til þess að við getum hætt þessu. Það er vandamálið. Okkur finnst of vænt um þær,“ segir Svala. Landnámsjörðin Þjóðólfstunga í Tungudal í Bolungarvík.Arnar Halldórsson Féð sækir í víkurnar og fjöllin í kring, fer alla leið yfir í Súgandafjörð. Svæðið er því stórt sem þarf að smala á haustin, meðal annars Keflavík, Skálavík og Stígahlíð. -Þetta eru snarbrött fjöll hérna. Er ekki erfitt að smala þetta? „Jú, jú, maður getur verið þreytt, sko.“ -Og eru þær að klifra hér upp í fjallstinda? „Þær fara alveg upp í topp, sko.“ -En er þetta þess virði að standa í þessu? „Þetta er rosagaman. Ég væri ekki í þessu nema af því að þetta er gaman,“ svarar Svala Björk. Feðginin Hafþór Gunnarsson og Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir við eyðibýlið Minnibakka í Skálavík.Arnar Halldórsson Skálavík er einskonar bakgarður Bolvíkinga. Á eyðijörðinni Minnibakka hittum við Guðbjörgu Stefaníu Hafþórsdóttur, forseta bæjarstjórnar, og föður hennar, Hafþór Gunnarsson pípulagningameistara, sem fræða okkur um sögu Skálavíkur. „Hér eru margir sem eiga orlofshús og nýta mikið á sumrin, bæði fólk sem býr í Bolungarvík og annarsstaðar á landinu,“ segir Guðbjörg. „Hér var eiginlega lífhöfn Bolvíkinga og Ísfirðinga sem réru í Djúpið og dýpra,“ segir Hafþór. Íbúðarhúsið á Minnibakka var reist árið 1906 en jörðin fór í eyði árið 1964, sú síðasta af sjö jörðum Skálavíkur. „Það eru sjö býli hérna, svona aðalbýli. Svo var fullt af hjáleigum. Það var talað um 180 manns sem voru hérna þegar flest var,“ segir Hafþór. Búsældarlegt er í Skálavík. Minnibakki er við sjávarbakkann.Arnar Halldórsson Hann rifjar upp að um eitthundrað manns hafi verið í Skálavík árið 1910 þegar Magnús Magnússon, skáldið á Þröm, var þar kennari en hann var fyrirmynd Halldórs Laxness að Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi í Heimsljósi. Þátturinn er sá fyrri af tveimur um Bolungarvík en hann má nálgast í heild á Stöð 2+. Hér má sjá níu mínútna kafla: Síðari þátturinn um Bolungarvík verður sýndur á mánudagskvöld klukkan 19:25. Mér má sjá kynningarstiklu þáttarins:
Um land allt Bolungarvík Landbúnaður Tengdar fréttir Illviðrin úr Jökulfjörðum brjóta fyrst á húsi Einars „Þegar norðaustanáttin kemur hér úr Jökulfjörðunum þá er fyrsti fasti punkturinn sem hún brýtur á húsið mitt. Maður finnur stundum fyrir þessu en allt er þetta þess virði,“ segir Bolvíkingurinn Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, sem býr í einu ysta húsinu við sjávarbakkann í Bolungarvík. 28. febrúar 2022 12:22 Mjólkurvinnslan Arna sýnir að ekki þarf allt að vera í Reykjavík Mjólkurvinnslan Arna hefur á einum áratug vaxið upp í það að verða næststærsta fyrirtæki Bolungarvíkur, með yfir fjörutíu manns í vinnu. Stofnandinn segir þetta sýna að það þurfi ekki allt að vera í Reykjavík, það sé vel hægt að byggja upp öflugt fyrirtæki úti á landi. 2. mars 2022 22:02 Segist finna til ábyrgðar að stýra stærsta fyrirtæki sjávarbyggðar Útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason hefur byggt upp stærsta atvinnufyrirtæki Bolungarvíkur á undanförnum árum með milljarða fjárfestingum í útgerð og fiskvinnslu. Hann segist finna til ábyrgðarinnar og sé ekki á leiðinni í burtu með kvótann. 28. febrúar 2022 23:10 Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira
Illviðrin úr Jökulfjörðum brjóta fyrst á húsi Einars „Þegar norðaustanáttin kemur hér úr Jökulfjörðunum þá er fyrsti fasti punkturinn sem hún brýtur á húsið mitt. Maður finnur stundum fyrir þessu en allt er þetta þess virði,“ segir Bolvíkingurinn Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, sem býr í einu ysta húsinu við sjávarbakkann í Bolungarvík. 28. febrúar 2022 12:22
Mjólkurvinnslan Arna sýnir að ekki þarf allt að vera í Reykjavík Mjólkurvinnslan Arna hefur á einum áratug vaxið upp í það að verða næststærsta fyrirtæki Bolungarvíkur, með yfir fjörutíu manns í vinnu. Stofnandinn segir þetta sýna að það þurfi ekki allt að vera í Reykjavík, það sé vel hægt að byggja upp öflugt fyrirtæki úti á landi. 2. mars 2022 22:02
Segist finna til ábyrgðar að stýra stærsta fyrirtæki sjávarbyggðar Útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason hefur byggt upp stærsta atvinnufyrirtæki Bolungarvíkur á undanförnum árum með milljarða fjárfestingum í útgerð og fiskvinnslu. Hann segist finna til ábyrgðarinnar og sé ekki á leiðinni í burtu með kvótann. 28. febrúar 2022 23:10