Orri Freyr og félagar enn með fullt hús stiga | Bjarni skoraði fimm í öruggum sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. febrúar 2022 17:53 Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í Elverum hafa unnið alla 17 leiki sína í norsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Sanjin Strukic/Pixsell/MB Media/Getty Images Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í skandinavísku deildunum í handbolta í dag. Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í Elverum eru enn með fullt hús stiga á toppi norsku deildarinnar, Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fimm mörk fyrir Skövde í Svíþjóð og Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í GOG unnu í Danmörku.
Orri Freyr og félagar í Elverum unnu sannfærandi sjö marka sigur gegn verðandi ofurliðinu Kolstad frá Þrándheimi, 37-30. Orri skoraði þrjú mörk fyrir Elverum, en liðið trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir 17 umferðir. Þá skoraði Bjarni Ófeigur Valdimarsson fimm mörk fyrir Skövde í níu marka sigri liðsins gegn Ålingsas í sænsku deildinni. Bjarni og félagar sitja í öðru sæti deildarinnar með 24 stig eftir 17 umferðir, þremur stigum á eftir toppliði Savehof. Að lokum unnu Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG fimm marka útisigur gegn Skjern í dönsku deildinni. Viktor sat stærstan hluta leiksins á bekknum, en GOG er nú með átta stiga forskot á toppi deildarinnar eftir 18 leiki.
Handbolti Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Sjá meira