Forseti Gíneu-Bissaú segir marga látna eftir tilraun til valdaráns Atli Ísleifsson skrifar 2. febrúar 2022 06:39 Umaro Sissoco Embaló var kjörinn forseti Gíneu-Bissaú árið 2019. AP Umaro Cissoko Embaló, forseti Afríkuríkisins Gíneu-Bissaú, segir marga liðsmenn öryggissveita landsins látna eftir tilraun hóps manna til valdaráns í gær. Embaló segir að búið sé að tryggja öryggi í landinu á ný eftir það sem hann kallar „misheppnaða árás á lýðræðið“.
BBC segir frá því að skothríð hafi brotist út nærri byggingu ríkisstjórnar landsins í höfuðborginni Bissaú á þeim tíma þar sem forsetinn sat ríkisstjórnarfund ásamt forsætisráðherranum Nuno Gomes Nabiam og fleiri ráðherrum. Segir að hópur vopnaðra manna, í borgaralegum klæðum, hafi ráðist á bygginguna og hafi lögreglumaður þar verið drepinn. Hermönnum hafi þó tekist að bjarga helstu ráðamönnum landsins frá árásarmönnunum. Enn er margt á huldu varðandi framvinduna, þar með talið hvað árásarmennirnir hafi verið margir og sömuleiðis hvað margir hafi látið lífið í átökunum. Umaro Sissoco Embaló var kjörinn forseti Gíneu-Bissaú árið 2019. Gínea-Bissaú er eitt fátækasta ríki heims, er fyrrverandi portúgölsk nýlenda, og hafa verið gerð níu valdarán eða tilraunir til valdaráns í landinu frá árinu 1980.
Gínea-Bissaú Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Fleiri fréttir Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Sjá meira