Brentford staðfestir samning við Christian Eriksen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2022 08:16 Christian Eriksen í leiknum afdrifaríka á móti Finnum á EM. EPA-EFE/Friedemann Vogel Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen snýr aftur í fótboltann og það í ensku úrvalsdeildina.
Eriksen hefur ekki spilað fótbolta síðan að hjarta hans hætti að slá í fyrsta leik Dana á Evrópumótinu síðasta sumar. Lækna- og sjúkraliði á Parken tókst að lífga hann við á vellinum og hann hefur náð sér. View this post on Instagram A post shared by Sky Sports (@skysports) Eriksen var líka staðráðinn að snúa aftur inn á fótboltavöllinn og dreymir um að spila með danska landsliðinu á HM í Katar í nóvember. Gott skref í þá átt var að komast að hjá liði í sterkri deild og það tókst þessum 29 ára gamla leikmanni. Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford staðfesti í morgun samning við danska landsliðsmiðjumanninn. Hann gerir sex mánaða samning við félagið eða út þetta tímabil. Christian Eriksen kemur til enska félagsins á frjálsri sölu en ítalska félagið hafði sagt upp samningi hans eftir að ljóst var að hann fengi ekki leyfi til að spila í Seríu A með gangráð. Eriksen þekkir vel til í ensku úrvalsdeildinni en hann spilaði með Tottenham Hotspur í sjö ár frá 2013 til 2020. Welcome to Brentford, @ChrisEriksen8 #BrentfordFC #EriksenJoins pic.twitter.com/O8h5WbdUZ2— Brentford FC (@BrentfordFC) January 31, 2022
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Fótbolti Tudor tekur við Tottenham Enski boltinn Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport „Hann er skíthræddur“ Enski boltinn Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport Fjölskylda Patta kaus að bjóða frekar frítt inn Sport Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjá meira