Björgvin Páll greindist aftur og Elliði kominn með veiruna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. janúar 2022 12:47 Elliði Snær Viðarsson í leiknum gegn Króatíu í gær. getty/Sanjin Strukic Björgvin Páll Gústavsson og Elliði Snær Viðarsson fengu jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi í morgun. Þeir bíða eftir niðurstöðu PCR-prófs.
Þetta er í annað sinn sem Björgvin Páll greinist með kórónuveiruna. Hann greindist fyrst með hana á miðvikudaginn en sneri aftur úr einangrun og var í hóp í leiknum gegn Króatíu í gær. Alls hafa ellefu leikmenn Íslands greinst með kórónuveiruna síðustu vikuna. Þetta eru þeir Björgvin Páll, Elliði, Ólafur Guðmundsson, Elvar Örn Jónsson, Aron Pálmarsson, Bjarki Már Elísson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Arnar Freyr Arnarsson, Janus Daði Smárason, Daníel Þór Ingason og Vignir Stefánsson. Þá greindist sjúkraþjálfarinn Jón Birgir Guðmundsson einnig með veiruna. Ísland hefur aðeins verið með fjórtán leikmenn á skýrslu í leikjunum þremur í milliriðli I. Í leiknum gegn Króatíu voru tveir nýliðar í hópnum og sjö af fjórtán höfðu leikið innan við tuttugu landsleiki. Ísland mætir Svartfjallalandi í lokaleik sínum í milliriðli I klukkan 14:30 á morgun. Ekki er loku fyrir það skotið að einhverjir leikmenn gætu snúið aftur í íslenska liðið fyrir leikinn. Íslendingar eiga enn möguleika á að komast í undanúrslit en til að það gerist þurfa þeir að vinna Svartfellinga og treysta á að Danir vinni Frakka um kvöldið. Með sigri er Ísland öruggt með að keppa um 5. sætið á EM.
EM karla í handbolta 2022 Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Sjá meira