Jóhann Gunnar sagði söguna af gleraugunum sem komu honum í smitgát Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2021 13:00 Jóhann Gunnar Einarsson segir söguna af smitgát sinni en Theódór Ingi Pálmason, kollegi hans í sérfræðingastólnum, hefur gaman af. Skjámynd/S2 Sport Jóhann Gunnar Einarsson sagði frá kynnum sínum af kórónuveirunni í Seinni bylgjunni í vikunni.
Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar, var að fagna því að níunda umferðin hafi farið öll fram án nokkurra frestanna vegna kórónuveirunnar en það kallaði á sögu frá sérfræðingnum. „Ég fór í smitgát um daginn,“ sagði Jóhann Gunnar og fékk orðið. Þetta var samt ekki alveg eins og hjá honum og hjá Valsmanninum Agnari Smára Jónssyni. „Smitgát er ekki þannig því þá máttu gera allt. Þú þarft bara að fylgjast með einkennum og fara í tvö hraðpróf,“ sagði Jóhann. „Það smitaðist einn kennari hjá okkur. Hann var veikur einn daginn. Ég var að kenna í forföllum,“ sagði Jóhann sem vinnur í Réttarholtsskóla í Reykjavík. Klippa: Seinni bylgjan: Sagan á bak við smitgát Jóa „Svo var ég að lesa upp og gleraugun hjá kennaranum voru á borðinu. Ég tók þau upp, prófaði þau og sá betur. Svo las ég og var með þau. Síðan kom svona móða því að það var langt síðan ég notaði gleraugu,“ sagði Jóhann. „Covid-móðan,“ skaut Theódór Ingi Pálmason, kollegi hans í sérfræðingastólnum, inn í en Jóhann hélt áfram. „Svo tók ég af mér gleraugun. Við fengum síðan póst um kvöldið um að þessi kennari væri með Covid. Ég fór þá að hugsa: Snertifletir, hvernig virka þeir aftur,“ sagði Jóhann. „Þú ert með gott mótefni, ég finn það bara á mér eftir þessa sögu,“ sagði Stefán Árni Pálsson. „Já, bólusettur,“ sagði Jóhann Gunnar en það smá sjá þessa spjall hér fyrir ofan.
Seinni bylgjan Olís-deild karla Mest lesið Sigurvegari Stokkhólms-maraþonsins látin aðeins þrítug Sport Sjáðu brotið sem Blikar eru brjálaðir yfir Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Körfubolti Þorsteinn tók fram úr mörgum og varð fyrstur Íslendinga í mark á HM Sport Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Körfubolti Trump hikar ekki við að færa leiki á HM úr hættulegum borgum Fótbolti Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Golf Arnar ekki áfram með Fylki Íslenski boltinn Svona hefst Ryder-bikarinn: „Viljum ná öflugri byrjun“ Golf Þora ekki að horfa á strákinn vegna fúkyrðaflaums Golf Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira