Samherjar Emils: Erfitt að sjá vin sinn liggja eftir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. nóvember 2021 12:01 Emil Pálsson í leik með Fjölni. vísir/vilhelm Félagar Emils Pálssonar hjá Sogndal segja að það hafi verið hræðileg lífsreynsla að sjá samherja sinn fara í hjartastopp í miðjum leik.
Emil hné niður á 12. mínútu í leik Sogndal og Stjørdals-Blink í norsku B-deildinni í fyrradag. Hann var lífgaður við á staðnum og fluttur með sjúkraþyrlu á háskólasjúkrahúsið í Haukeland í Björgvin. Samkvæmt upplýsingum frá Sogndal í gær er Emil vakandi og líðan hans sögð góð eftir aðstæðum. Tveir samherjar Emils tjáðu sig um atvikið við Verdens Gang í gær, fyrirliðinn Per-Egil Flo og Axel Kryger. „Þetta hefur verið krefjandi. Þú færð áfall þegar eitthvað svona gerist og vonar bara að þetta fari vel. Þetta er þungt,“ sagði Flo. „Þetta var hræðileg lífsreynsla. Hann sendi boltann, þú horfðir í aðra átt og þegar þú horfðir til baka voru hlutirnir ekki í lagi.“ Kryger tók í sama streng en sagði að fréttir gærdagsins hafi róað leikmenn og starfsfólk Sogndal. „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir okkur. Það er erfitt að horfa á góðan vin liggja svona eftir. Þetta hefur áhrif á alla,“ sagði Kryger. „Þetta var mikill léttir að frétta að ástand hans væri stöðugt. Það er gott fyrir okkur að vita það.“ Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær leikur Sogndal og Stjørdals-Blink, eða síðustu 78 mínúturnar, verða kláraðar. Staðan var 1-0, Sogndal í vil, þegar Emil hné niður. Sogndal er í 5. sæti norsku B-deildarinnar með fjörutíu stig. Tvö efstu liðin fara upp í úrvalsdeildina en liðin í sætum 3-6 í umspil.
Norski boltinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Körfubolti Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Fleiri fréttir Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Sjá meira