SOS á Íslandi sendir rúmar 3 milljónir króna til Haítí Heimsljós 29. október 2021 11:23 SOS Forgangsverkefni SOS á Haítí eru meðal annars uppsetning á barnvænum svæðum og að veita umkomulausum börnum stuðning og börnum sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar. SOS Barnaþorpin á Íslandi senda á næstu dögum rúmar þrjár milljónir króna til SOS á Haítí vegna neyðaraðstoðar í kjölfar jarðskjálftanna í ágúst síðastliðnum. Í neyðarsöfnun í haust söfnuðust rúmar ellefu hundruð þúsund krónur og SOS á Íslandi bætti við tveimur milljónum króna úr neyðarsjóði samtakanna. Framlagi SOS verður varið í neyðaraðgerðir á Haítí. Í frétt á vef SOS segir að enn ríki ringulreið eftir skjálfta að stærðinni 7,2 sem reið yfir vesturhluta eyjunnar 14. ágúst og neyðin sé því enn mikil. „SOS Barnaþorpin og fleiri hjálparsamtök eru á staðnum en helstu verkefni SOS eru að tryggja öryggi og velferð barna og fjölskyldna þeirra,“ segir í fréttinni. Forgangsverkefni SOS á Haítí eru meðal annars uppsetning á barnvænum svæðum og að veita umkomulausum börnum stuðning og börnum sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar. „Rík áhersla er á að sameina fjölskyldur. Þá hefur SOS skóli í Les Cayes verið opnaður fyrir nemendur, SOS sendir starfsfólk til að hjálpa í neyðarskýlum og verið er að setja á laggirnar fjölskylduhjálp. Samhliða þessu er SOS einnig að aðstoða starfsfólk okkar sem skjálftinn kom illa niður á.“ Skólagöngu 230 þúsund barna ógnað Samtökin benda á að raunveruleg hætta sé á að yfir 230 þúsund börn hætti í skóla ef skólar opni ekki fljótt aftur. Skaðlegar afleiðingar þess yrðu óbætanlegar. Tíu þúsund pökkum með skólagögnum verður dreift til barna sem jarðskjálftinn kom verst niður á og fleiri nemendur fá aðstoð eftir því sem þörfin kemur betur í ljós. Samkvæmt síðustu upplýsingum frá Haítí hafa 2.207 fundist látnir, 320 er enn saknað, 12.268 eru slasaðir, 52.952 hús eyðilögðust og 77.066 hús urðu fyrir skemmdum. „Félagshagfræðileg áhrif skjálftans versna með hverjum degi,“ segir í frétt SOS. „Atvinnuleysi er að aukast þar sem starfsemi fyrirtækja hefur víða lagst niður eða hreinlega þurrkast út. Fjölskyldur upplifa fæðuóöryggi í auknum mæli, þunganir stúlkna á barnsaldri aukast sem og afbrot, sérstaklega meðal unglingagengja.“ Skjólstæðingar SOS Barnaþorpanna á Haítí eru um 11.700 talsins í þremur barnaþorpum en búast má við að þeim fjölgi verulega á næstunni. Um 1300 þeirra eru börn og ungmenni í barnaþorpum en auk barnafjölskyldna í fjölskyldueflingu. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Haítí Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Haítí Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent