Stigalausir Mosfellingar stríddu toppliðinu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. október 2021 19:31 Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sjö mörk í liði Fram í kvöld. VÍSIR/BÁRA Stigalaust lið Aftureldingar tapaði gegn toppliði Fram í Olís-deild kvenna í kvöld er liðin mættust í Mosfellsbæ. Lokatölur 29-25, en það tók Framara rúmar 50 mínútur að hrista Mosfellinga af sér.
Nokkuð jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins, en þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan 8-7, Fram í vil. Áfram héldu liðin að haldast í hendur, alveg þangað til á lokamínútum fyrri hálfleiks þegar Fram skoraði þrjú mörk í röð og fór því með þriggja marka forskot inn í hálfleik, 14-11. Afturelding skoraði fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks og allt orðið jafnt á ný. Gestirnir náðu aftur þriggja marka forskoti, en heimakonur gáfust ekki upp og jöfnuðu metin í 21-21. Gestirnir í Fram náðu þó að lokum enn einu áhlaupinu undir lok leiks, en það bil náðu leikmenn Aftureldingar ekki að brúa. Niðurstaðan varð því fjögurra marka sigur Fram, 29-25. Emma Olsson og Ragnheiður Júlíusdóttir voru markahæstar í liði Fram me' sjö mörk hvor, en í liði Aftureldingar var það Katrín Helga Davíðsdóttir sem var atkvæðamest með níu mörk. Fram hefur nú þriggja stiga forskot á toppi Olís-deildarinnar með níu stig, en hafa þó spilað tveim leikjum meira en næstu lið. Afturelding er enn án stiga á botni deildarinnar.
Olís-deild kvenna Fram Afturelding Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Engin skoraði meira en Elín Klara Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Valur steinlá gegn Blomberg-Lippe „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Sjá meira