Neðri deildir Vodafonedeildarinnar í CS:GO hefjast í lok október Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. október 2021 06:31 Neðri deildir Vodafonedeildarinnar í CS:GO hefjast 27. október. Hinagð til hafa bestu lið landsinsí CS:GO mæst í Vodafonedeildinni þar sem að liðin etja kappi í þessum vinsæla fyrstu persónu skotleik. Nú eru að fara af stað neðri deildir Vodafonedeildarinnar þar sem að hverjir sem er geta skráð sig og tekið þátt.
Á heimasíðu Rafíþróttasambands Íslands kemur fram að raðað verði í deildir eftir styrkleika, og að leikið verði í átta liða deildum, en neðri deildirnar verða spilaðar frá 27. október til 2. mars. Leikin verður tvöföld umferð, og allar viðureignir verða svokallaðar Bo3, sem þýðir að liðið sem er fyrra til að sigra tvö kort vinnur viðureignina. Eins og áður segir verður liðunum raðað í deildir eftir styrkleika, en þau lið sem tóku þátt í Deildarforkeppninni fá efstu lausu sætin í neðri deildunum. Þau lið sem ekki tóku þátt í deildarforkeppninni eru röðuð eftir styrkleika, þar sem farið er eftir fyrri árangri í deildum og/eða meðal „elo“ leikmanna á Faceit. Allar upplýsingar varðandi neðri deildir Vodafonedeildarinnar má nálgast inni á heimasíðu Rafíþróttasambands Íslands með því að smella hér.
Vodafone-deildin Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bale af golfvellinum og á skjáinn Enski boltinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Enski boltinn „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ Íslenski boltinn Donnarumma skilinn eftir heima Enski boltinn „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Íslenski boltinn Enska augnablikið: Sá allra svalasti Enski boltinn